149. löggjafarþing — 132. fundur,  2. sept. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[10:57]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þeir þingmenn sem tala um að hér sé afbakað lýðræði vita ekki hvað lýðræði er vegna þess að mikill meiri hluti þessarar þjóðar er á móti því að málið verði afgreitt í dag (Gripið fram í: Það er ekki rétt.) og þeir sem ekki hlýða kalli þjóðarinnar verða um síðir dregnir til ábyrgðar, bæði þeir og stjórnmálasamtök þeirra. Það bíður betri tíma. En að halda því fram að með því að samþykkja þetta mál í dag séu menn að ganga erinda lýðræðis í landinu er afbökun, herra forseti, og það er rangt. Það er eitthvað sem við eigum ekki að gera vegna þess, eins og hefur fram komið, að þetta mál endar ekki í dag. Það gleymist ekki í dag. (Gripið fram í.) Þeir sem samþykkja þetta mál munu reisa sjálfum sér og flokkum sínum níðstöng til langrar framtíðar. [Háreysti á þingpöllum.]