149. löggjafarþing — 132. fundur,  2. sept. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[11:16]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Það þarf svo sem ekki að koma neinum á óvart hér í salnum í dag að ég mun segja nei við þessari þingsályktunartillögu og tengdum málum. En ég vildi bara nefna það við lok þessarar umræðu að það er margt mjög svekkjandi í henni. Það sem er kannski mest svekkjandi af öllu er að þeir sem helst áttu að standa í vörninni biluðu verst.