tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur.
Herra forseti. Þetta er á vissan hátt mjög áhugavert mál og áhugaverð tilraun í skattamálum, en tilrauninni fylgir mikil óvissa, t.d. óvissa um nákvæmlega hver merking orðanna „síðari afnot“ er. Önnur prentun á ekki að teljast til síðari afnota en gerð kvikmyndar út frá bók ætti að teljast það. En hvað um aðra byggingu eftir sömu teikningu o.s.frv.? Þetta er mjög óljóst og það er einnig óljóst með erfðafjárskatt, hvort þetta breyti einhverju gagnvart honum. Ég bara verð því miður að líta svo á að þetta frumvarp ógni í rauninni stöðugleika í skattamálum og mér finnst mjög áhugavert að þetta sé gert vegna þess að það opnar á að mjög margar greinar sem eru ekki þær sem er verið að hugsa um með frumvarpinu sjálfu geti farið að færa tekjur sínar undir fjármagnstekjuskatt í stað tekjuskatts. Það er ábyrgðarlaust og erfitt að skilja nákvæmlega hvers vegna sú leið er farin (Forseti hringir.) frekar en að fara í að bæta starfsumhverfi skapandi greina vegna þess að það er raunverulega það sem allir eru sammála um að þurfi að gera.