149. löggjafarþing — 133. fundur,  2. sept. 2019.

raforkulög.

792. mál
[12:42]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Hvað sem mönnum finnst um þriðja orkupakkann þá hafa margir landsmenn áhyggjur af raforkusæstreng. Ef hann yrði lagður kæmi stjórnskipulegi fyrirvarinn einmitt upp. Friðrik Árni Friðriksson Hirst og Stefán Már Stefánsson voru alveg skýrir með það að ef þessir fyrirvarar yrðu settir inn, þ.e. að Alþingi yrði að koma að ákvörðun um sæstreng, yrði að stunda málþóf hér og fara af stað með þjóðfélagsumræðu o.s.frv., eins og hefur verið gert í vor af Miðflokksmönnum. Við erum að samþykkja og það verður samþykkt, þó að Miðflokkurinn greiði atkvæði gegn því, að slíkar varnir verði reistar með lögum, í raforkulögum, í stefnu stjórnvalda, að samþykki Alþingis þurfi til. Fólk treystir kannski ekki Alþingi. Nei. En það þýðir að minni hlutinn gæti stundað málþóf. Það er mjög áhugavert en menn segja: Já, en heyrðu, þetta þýðir ekki. Þá standa menn á endanum frammi fyrir því hvort þeir vilji mögulega borga skaðabætur eða samþykkja þetta. Þá fer sú umræða alla vega fram og hún verður að eiga sér stað á Alþingi. Það er það sem er í boði með því að greiða atkvæði með þessu máli. Það er mjög áhugavert að Miðflokksmenn greiði atkvæði á móti, horfandi niður í barm sér. Þeir vita alveg að þetta er gott mál. Það er gott mál að leyfa Alþingi að tala um þetta þegar fram í sækir. (Forseti hringir.) Þeir vilja ekki greiða atkvæði með málinu af því að þá gæti einhver misskilið það sem svo að þeir væru að greiða atkvæði með orkupakkanum. (Forseti hringir.) Stjórnmál skipta greinilega meira máli við þessa atkvæðagreiðslu en það að setja upp varnir fyrir landsmenn.