149. löggjafarþing — 133. fundur,  2. sept. 2019.

þingfrestun.

[12:45]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 149. löggjafarþings, frá 2. september 2019 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 10. september 2019.

Gjört á Bessastöðum, 28. ágúst 2019.

Guðni Th. Jóhannesson.

________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 149. löggjafarþings, er frestað og ég þakka hv. alþingismönnum og starfsfólki Alþingis fyrir mikil afköst á því þingi sem nú er loks að ljúka.

Við komum aftur saman á nýju þingi til þingfunda eftir einungis átta daga. Ég óska hv. þingmönnum góðs gengis við undirbúning þingfunda og er vongóð um að það þing verði landsmönnum öllum til heilla.