afbrigði um sætaúthlutun.
Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. 4. mgr. 3. gr. þingskapa, þannig að hluta megi um sæti formanna þingflokka sérstaklega, að þeir hafi sæti næst inngangi í salinn og dragi innbyrðis um þau sæti. Skoðast þau afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.
Þingflokksformenn hafa, í trausti þess að þetta yrði samþykkt, þegar dregið um þessi sæti. Fór sá dráttur þannig að Halldóra Mogensen hlýtur sæti 2, Birgir Ármannsson sæti 7, Willum Þór Þórsson sæti 8, Guðmundur Ingi Kristinsson sæti 13, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sæti 22, Gunnar Bragi Sveinsson sæti 23, Oddný G. Harðardóttir sæti 44 og Hanna Katrín Friðriksson sæti 45.
Þá hefur enn fremur orðið samkomulag um hvernig hluta skuli um sæti fyrir hv. þm. Ingu Sæland þannig að hún fái sæti sem henni hentar sérstaklega. Fær Inga Sæland sæti nr. 6.