150. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[11:58]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og langar að taka aðeins áfram þetta með óvissusvigrúmið og þær aðgerðir sem farið var í til að breyta stefnu. Hér í þessu fjárlagafrumvarpi birtist okkur sú staðreynd að hæstv. ríkisstjórn hefur gefið eftir frá upprunalegri stefnu 0,9% afgang, hlutfall af vergri landsframleiðslu, hátt í 30 milljarða. Og svo er óvissusvigrúm byggt inn í stefnuna til að mæta þeirri óvissu sem uppi er og við fórum yfir í fyrra andsvari.

Ég vildi draga þetta fram vegna þess að þarna sjáum við raungerast þá vísbendingu sem við horfum á í hagstjórn á Íslandi þar sem eru sterkar vísbendingar sem birtast í vaxtalækkunum Seðlabankans og leggjast á sveif með fjármálastefnunni um að mæta þessari skammvinnu sveiflu.