fjárlög 2020.
Virðulegi forseti. Ég vil nefna tvo þætti sem komu fram í máli hv. þingmanns. Í fyrsta lagi það að ekki sé svarað til um hvað standi til að gera ef forsendur fjárlagafrumvarpsins bresta. Ég verð að segja að mér þykir þetta dálítið langsótt nálgun á umræðuefnið hér í dag. Við höfum í fjármálastefnunni ákveðið óvissusvigrúm. Ef það hjálpar eitthvað til að dýpka skilning á því hvað myndi gerast ef efnahagssamdrátturinn yrði langvinnari þá hef ég nefnt það hér í dag að frumjöfnuður ríkissjóðs, þ.e. staðan áður en kemur að greiðslu fjármagnsliða og annarra slíkra þátta, hefur ekki áður verið jafn sterkur og við sjáum nú við það hagvaxtarstig sem við búum við. Þetta þýðir að við erum í ágætisfærum til þess að gefa eitthvað eftir af frumjöfnuðinum verði niðursveiflan langvinnari.
Hvernig það kallast síðan á við fjármálastefnuna er annað mál. Það fer auðvitað eftir umfangi áhrifanna hvort það fer að rekast á afkomumarkmiðin í fjármálastefnunni. Með þessu er ég að segja að það er ekkert að því, ef forsendur fjárlagafrumvarpsins og fjármálaáætlunar bresta, ef hagspár reynast rangar og niðursveiflan verður dýpri, að ríkissjóður hjálpi til við að örva eftirspurn í hagkerfinu með því að vera rekinn í einhvern tíma öfugu megin við núllið. Með þessu er ég að svara því hvort gripið verði til harkalegra niðurskurðaraðgerða eða ekki. Mér finnst mikilvægt að þetta komi fram.