úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa áhugaverðu spurningu. Mér hefur sjálfri fundist íslenskir dómstólar túlka hugmyndina um lögvarða hagsmuni allt of þröngt og hugsanlega skýrist það af lögunum okkar eða einhverri hefð sem hefur skapast. Hv. þingmaður minnist á að hann hafi ekki getað fengið það staðfest að hann hafi haft lögvarða hagsmuni í sínu eigin máli. Ég kannast við það. Ég fékk það staðfest frá kjararáði að ég ætti ekki lögvarða hagsmuni af því að fá skýringar á því á hvaða grunni launahækkanir þingmanna byggðu. Ég fékk þar af leiðandi ekki svör við spurningum þar sem ég ætti ekki lögvarða hagsmuni af því að vita á hvaða grunni kjararáð tók ákvörðun um launahækkun mína. Þetta er svolítið áhugavert hugtak og það er líka mjög áhugavert hvernig farið hefur verið með það.
Hv. þingmaður spyr hvort ég hafi ekki áhyggjur af því að málið opni á einhverja flóðgátt. Ég er að vonast til þess að það opni kannski dyr að því að við förum að skoða þetta hugtak með opnari hug. En vandamálið — eða kannski ekki vandamál heldur úrlausnarefnið — þegar kemur að náttúrunni er að við eigum öll lögvarða hagsmuni af því að vernda náttúruna. Þess vegna þarf að setja þetta undanþáguákvæði vegna þess að það þarf að vera mjög skýrt að til þess að uppfylla Árósasamninginn eigum við að geta tekið til varna fyrir náttúruna sem getur ekki varið sig sjálf. Til þess höfum við þessi hagsmunasamtök, til þess höfum við umhverfissamtök, til að berjast fyrir náttúrunnar hönd. Við höfum ekki gengið jafnlangt hér og t.d. í öðrum löndum þar sem allir hafa kæruheimildir, hver borgari í hverju landi, óháð því hvort hann búi við hliðina á staðnum þar sem framkvæma á eða ekki. Við höfum ekki gengið svo langt og erum heldur ekki að leggja til að svo langt verði gengið í þetta sinn. En við viljum auka og efla möguleika náttúruverndarsamtaka til að standa vörð um hagsmuni náttúrunnar á Íslandi, enda vitum við að það er mjög mikilvægt að hún hafi sinn málsvara.
Ég verð að koma að seinni spurningu hv. þingmanns í síðara andsvari.