úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir svarið og get ekki annað en verið innilega sammála um að þetta með lögvarða hagsmuni er eitthvað sem þarf að taka á og að mörgu leyti þarf að taka dómskerfið okkar til gagngerrar endurskoðunar. Það er ákveðið áhyggjuefni hvernig þetta fer í dómskerfið. En ég hef líka áhyggjur af því að ef lítil félög í náttúruvernd reyna að berjast fyrir réttindum sínum er dýrt að fara með mál fyrir dómstóla. Þá er það spurning um fjármögnun. Við vitum að ekki er hægt að fá gjafsókn. Það er eitt af því erfiðara í dómskerfinu að ná sér í gjafsókn í ákveðnum málum. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að sú fjármögnun fari fram hjá þeim hagsmunasamtökum sem þarna eru undir? Sér hún fyrir sér að þau hafi fjárhagslega burði til að standa í þessum málum?