sjúkratryggingar.
Virðulegi forseti. Það bera allir ábyrgð. Það bera auðvitað allir ábyrgð á því að hver einasti einstaklingur, hvort sem hann þarf að leita sér aðstoðar vegna andlegrar eða líkamlegrar vanheilsu, fái bót sinna meina. Það skiptir máli að við förum strax að setja geðheilbrigðismálin undir sama hatt og líkamlega heilbrigðisþjónustu. Þess vegna mæli ég hér, virðulegi forseti, fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, um aukið aðgengi að sálfræðimeðferð og annarri klínískri viðtalsmeðferð. Þetta er í annað sinn sem mál þetta er flutt á þingi en það var gert í febrúar fyrr á þessu ári og þá fór það til hv. velferðarnefndar þar sem það fékk mjög góða og mikilvæga umfjöllun. Það bárust alls 15 umsagnir frá ýmsum aðilum sem allar voru jákvæðar og ég vil geta þess að þá var, líkt og nú, meira en þriðjungur þingmanna á málinu. Þar gildir það sama nú, núna eru 23 þingmenn úr öllum flokkum á þessu máli og það segir auðvitað sína sögu. Það segir þá sögu að við öll berum ábyrgð, við viljum bera þá ábyrgð og við viljum miðla henni inn í stjórnkerfið þannig að kerfið sjálft taki tillit til þess sem við, kjörnir fulltrúar, heyrum og skynjum á þegnum þessa lands. Við miðlum þessu áfram og það er fagnaðarefni að við skulum vera hér úr stjórn og stjórnarandstöðu. Það skiptir máli að við getum sýnt í verki að þegar kemur að mikilvægum úrbótum getur þingið staðið saman og afgreitt góð mál málefnalega og faglega.
Það hefur lengi verið kallað eftir því að greiða verði fyrir aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Frumvarp þetta er einmitt liður í því. Verði það samþykkt munu sjúkratryggingar loksins taka til sálfræðimeðferðar og annarrar klínískrar viðtalsmeðferðar og ég mun aðeins fara yfir það á eftir. Það er eiginlega breytingin sem er á milli þinga — við erum að taka tillit til ábendinga sem gefnar hafa verið — að sálfræðiþjónusta og viðtalsþjónusta verði niðurgreidd líkt og önnur heilbrigðisþjónusta í fyrsta skipti.
Breytingin er svohljóðandi:
„Á eftir 21. gr. laganna kemur ný grein, 21. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Sálfræðimeðferð og önnur klínísk viðtalsmeðferð.
Sjúkratryggingar taka til nauðsynlegrar sálfræðimeðferðar og annarrar klínískrar viðtalsmeðferðar sem samið hefur verið um skv. IV. kafla. Sjúkratryggingastofnunin getur áskilið vottorð sérfræðings, heimilislæknis eða sérfræðilæknis um nauðsyn meðferðar. Ráðherra setur reglugerð um nánari framkvæmd greinarinnar þar sem m.a. er heimilt að kveða á um nánari skilyrði og takmörkun greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við sálfræðimeðferð.“
Þarna er m.a. verið að skírskota til þess að heilbrigðisráðuneytið hafi svigrúm til þess, til að mynda, að forgangsraða ákveðnum geðheilbrigðissjúkdómum umfram aðra, þeim sem er meira álag í, eins og við vitum t.d. varðandi þunglyndi, bara sem dæmi. Lykilatriði er að verið er að setja sálfræðimeðferð, eins og aðra heilbrigðisþjónustu, undir sjúkratryggingar. Það er meginmarkmiðið með frumvarpinu að þetta meðferðarúrræði falli undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands og verði þannig veitt á sömu forsendum og önnur heilbrigðisþjónusta. Slík þjónusta er nú undanskilin almennri greiðsluþátttöku sjúkratrygginga.
Frumvarpið hefur þegar tekið breytingum, eins og ég gat um áðan, og nú er bætt við að það taki einnig til annarrar klínískrar viðtalsmeðferðar, auk sálfræðimeðferðar. Þetta er gert eftir réttmætar athugasemdir, t.d. frá Félagsráðgjafafélagi Íslands og fleirum um að fyrra frumvarpið hafi aðeins gert ráð fyrir að ein fagstétt geti veitt viðtalsmeðferð við sálfélagslegum vanda. Það var réttilega bent á að nokkrar fleiri fagstéttir sinni vissulega mikilvægum samtalsmeðferðum, svo sem félagsráðgjafar, fjölskyldufræðingar og fleiri. Þetta eru allt saman klínísk úrræði sem stuðla að því að bjóða upp á fjölbreytta og faglega nálgun sem tryggir góða þjónustu fyrir þá sem þurfa á að halda. Betra aðgengi að þverfaglegri þjónustu eykur líkur á að einstaklingar finni viðeigandi meðferð sem þeim hentar, ekki sem kerfið eitt og sér ákveður heldur sem þeim hentar, og eykur það um leið líka von á bata til lengri tíma. Með frumvarpinu er því horft til fleiri fagstétta en sálfræðinga og það er trú frumflytjanda þessa máls að aukið aðgengi að slíkri meðferð minnki ofnotkun geðlyfja og auki líkur á að einstaklingar hafi valfrelsi til að finna meðferð hjá fagaðila sem hentar þeim hverju sinni.
Virðulegi forseti. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að um þessar mundir er söfnun í gangi á vegum kynningar- og fjáröflunarátaksins Á allra vörum. Hafi þær mikla þökk fyrir, stöllurnar þrjár sem að því verki og átaki standa, bæði núna og á umliðnum árum, en núna er verið að safna til styrktar starfsemi Eins lífs sem byggir á því að fræða foreldra, kennara, börn og ungmenni um þá hættu sem fylgir neyslu vímuefna og lyfseðilsskyldra lyfja. Þarna er um að ræða eitt stærsta forvarnaverkefni sem ráðist hefur verið í hér á landi á síðustu árum. Í umræðunni hefur jafnan verið nefnt að miklu máli skipti að stuðla að forvirkum aðgerðum í geðheilbrigðismálum, samhliða aukinni forvarnafræðslu og úrræðum. Vanlíðan ungmenna og brottfall úr námi hafa einnig verið nefnd sem orsakavaldar og áhættuþættir þegar kemur að neyslu fíkniefna og fíkniefnavanda ungmenna. Þetta eru auðvitað allt saman samofnir þræðir og mismunandi hvernig einstaklingar kljást við vandamálið en það hlýtur að liggja í augum uppi að aukið aðgengi að sálfræðiþjónustu og klínískri viðtalsmeðferð er lykilatriði til að sporna við þeim alvarlega vanda sem við vitum að margir kljást við alla daga, jafnvel árið um kring. Það er því miður staðreynd að vaxandi fjöldi fólks greinist með geðraskanir eða önnur andleg veikindi og á sama tíma er aðgengi að úrræðum og þjónustu fyrir þennan hóp afar takmarkað og kostnaðurinn oft himinhár. Það er mikilvægt að tryggja að þeir sem eru með virk einkenni fái lausn á vanda sínum sem allra fyrst til að koma í veg fyrir þekktan vítahring lyfja, þunglyndis og óvirkni. Slíkt getur haft alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir þá sem þurfa á hjálp að halda og ekki síður samfélagið allt.
Frumvarpinu er því ætlað að tryggja aðgengi einstaklinga að sálfræðiþjónustu og annarri klínískri viðtalsmeðferð. Aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu er lykilatriði þegar kemur að því að greina kvilla snemma og tryggja nauðsynlega meðferð eftir að greining liggur fyrir. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum landlæknis á gagnreynd sálfræðimeðferð, sem er sú meðferð sem hefur í rannsóknum sýnt mestan árangur, að vera fyrsti meðferðarkostur við kvíða, þunglyndi og öðrum sálrænum kvillum. Sálfræðimeðferð eða önnur klínísk viðtalsmeðferð í stað lyfjagjafar gerir að verkum að ráðist er að rótum vandans og getur það komið í veg fyrir eða dregið verulega úr lyfjagjöf. Þrátt fyrir það er slík meðferð oftast ekki raunhæfur kostur nema fyrir hluta almennings þar sem framboð er of takmarkað innan heilsugæslunnar með tilheyrandi biðlistum og töfum á nauðsynlegri meðferð. Þar spilar einnig inn í að það er ekki heimild til samninga samkvæmt gildandi lögum um að sjúkratryggingar taki til nauðsynlegrar sálfræðimeðferðar. Ólíkt annarri heilbrigðisþjónustu eru því sálfræðiþjónusta og önnur klínísk viðtalsúrræði fyrst og fremst í boði á starfsstofum sjálfstætt starfandi aðila án opinbers stuðnings við þá sem þurfa á þjónustunni að halda.
Virðulegi forseti. Það er orðið löngu tímabært að við komum til móts við ósýnilega sjúkdóma eins og þá andlegu, líkt og komið er til móts við þá sem sýnilegir eru. Þetta vitum við. Við þurfum að gera eitthvað í því. Þannig aukum við lífsgæði fólks. Það á enginn að þurfa að neita sér um sjálfsagða hjálp vegna kostnaðar eða skorts á aðgengi. En það er því miður staðreyndin í dag. Við sjáum það á gögnum. Samkvæmt upplýsingum Hagstofu telja um 33% fólks sig ekki hafa efni á geðheilbrigðisþjónustu. Það er mjög sláandi tala og hún er algjörlega óásættanleg. Þegar við greinum þetta enn betur sjáum við að þarna undir er helst tekjulágt fólk, tekjulágir hópar og ungt fólk sem er einmitt sá áhættuhópur sem er mikið í umræðunni í dag. Það liggur í augum uppi að það er ekki fyrir hvern sem er að reiða af hendi hundruð þúsunda króna til að ná bata. Algengt verð á sálfræðitíma er í kringum 15.000–18.000 kr. og talið er að það þurfi að jafnaði 10–15 meðferðartíma til að ná mælanlegum bata. Bein útgjöld vegna slíkrar meðferðar eru því talin í hundruðum þúsunda króna sem er ekki á færi hvers sem er að reiða af hendi.
Þeir hópar sem eru í mestri hættu og hafa ekki efni á að leita sér hjálpar eru, til viðbótar unga fólkinu, t.d. aldraðir, öryrkjar og tekjulágir einstaklingar. Við stöndum okkur ágætlega þegar kemur að úrræðum fyrir börn og það er fagnaðarefni. Það var gott skref að fjölga sálfræðingum á heilsugæslum um allt land, mjög gott mál, en að mínu mati skiptir miklu máli að beina athyglinni að ungu fólki og forvirkum aðgerðum til að sporna við langvarandi veikindum og vanda. Eftir 18 ára aldur hafa einstaklingar ekki sömu tækifæri til niðurgreiðslu og aðstoðar og áður. Námsmenn hafa ekki sama aðgang að styrkjum líkt og þeir sem eru t.d. á vinnumarkaði, í gegnum stéttarfélögin. Þess vegna er aldurshópurinn 18–25 ára sá aldurshópur sem er í hvað mestri áhættu og þar er úrræðaleysið mest þegar kemur að andlegum veikindum. Samkvæmt evrópskri heilsufarsrannsókn frá árinu 2015 mældust fleiri ungar konur á þeim aldri með þunglyndiseinkenni á Íslandi en í nokkru öðru Evrópuríki en hérlendis mældist um fimmta hver kona á þeim aldri með þunglyndiseinkenni. Um helmingur íslenskra ungmenna á aldrinum 16–25 ára hefur hugsað um að binda endi á líf sitt og af þeim hefur einn af hverjum tíu gert eitthvað til að skaða sig. Algengasta dánarorsök karlmanna á aldrinum 18–25 ára er sjálfsvíg.
Virðulegi forseti. Við erum allt of gjörn á að plástra vandann í stað þess að ráðast að rótum hans, að hluta til vegna þess að það er ódýrara. Það er auðveldara fyrir okkur hér að karpa í þingsal um útgjöldin, gjaldahliðina og tekjuhliðina og þess vegna er þessi leið ódýrari en til skamms tíma eru vondu fréttirnar þær að það leysir ekki vandann til lengri tíma. Við erum ekki að ráðast að rótum þessa þunga og mikla vanda. Gott dæmi um þetta er að árið 2017, í hittiðfyrra, leystu 48.000 einstaklingar út þunglyndislyf. Í nóvember 2018 höfðu 33.000 Íslendingar fengið ávísuð svefnlyf og nota Íslendingar um 37% meira — þetta kom mér á óvart þegar ég fór að grúska í þessu við undirbúning á frumvarpinu á síðasta þingi — af svefnlyfjum en t.d. Svíar. Notkun Íslendinga á þunglyndislyfjum er tvöföld á við meðaltal innan OECD-ríkjanna og 24% meiri en þeirrar OECD-þjóðar sem notar næstmest, er í öðru sætinu, og það eru Ástralir. Við erum næstum því með fjórðungi meira en þjóðin sem er í öðru sæti. Á sama tíma leiddi ný rannsókn í ljós að aðeins 8% af þeim sem hefja lyfjameðferð og ná bata verða ekki fyrir bakslagi eftir meðferð samanborið við 26% þeirra sem fara í klíníska meðferð í formi hugrænnar atferlismeðferðar á þeim 15 mánuðum sem rannsóknin nær til. 18% fleiri af heildarfjölda sjúklinga ná árangri í hugrænni atferlismeðferð en lyfjameðferð. Fjármunum ríkisins er því miklu betur varið í að greiða fyrir aðgang að úrræðum sem leysa þennan brýna vanda til lengri tíma og stuðla þannig að langvarandi virkni viðkomandi í samfélaginu í stað þess að einblína á úrræði sem veita ekki jafn miklar batahorfur. Reynum alla vega að sammælast um að hafa valfrelsi þannig að fólk sé ekki bundið við einhverja eina leið. Ég bind miklar vonir við það eftir þverpólitíska nálgun í málinu að það verði hægt.
Það má ætla að með því að fella sálfræðiþjónustu undir almannatryggingakerfið og auka þar með aðgengi fyrir almenning að geðheilbrigðisþjónustu verði unnt að spara stjórnvöldum háar upphæðir til lengri tíma. Auðvitað mun þetta kosta til að byrja með. Við vitum það. En fjárfestingar í mannauði og geðheilbrigði eru þjóðhagslega hagkvæmar og skila sér margfalt til baka. Nýverið birtust fréttir um nýgengi örorku vegna stoðkerfisvandamála. Það hafi minnkað með tilkomu niðurgreiðslu sjúkraþjálfunar frá ríkinu. Þetta er mál sem tengist ekki frumvarpinu en er risamál líka, aðgengi að sjúkraþjálfun. Við sjáum að með bættu aðgengi að sjúkraþjálfun minnkar nýgengi örorku og ungt fólk sérstaklega sem hefur leitað til sjúkraþjálfara, hafði ekki efni á því áður, fær bót á þeim meinum sem hafa hrjáð það. Fátækara fólk og yngra fólk leitar í sjúkraþjálfun af því að það er meira opnað fyrir það. Að sjálfsögðu þarf að fara vel með ríkisfé og við þurfum að gera okkur grein fyrir því hvernig við reynum að forgangsraða en við megum ekki glata þeim ávinningi sem hefur fengist út úr annars ágætu kerfi í tengslum við sjúkraþjálfara og sjúkraþjálfarakerfið allt. En það er, eins og ég segi, önnur saga og við eigum að ræða það einnig.
Ég dreg fram sjúkraþjálfaramálið því að það er að vissu leyti forvarnamál. Með meira aðgengi minnkaði nýgengi örorku, þannig að við höfum dæmi um ávinning sem hlýst af því að þegar ríkisvaldið fjárfestir í forvörnum og fyrirbyggjandi aðferðum í stað þess að vera með endalausa plástra í kerfinu. Slíkar forvarnir skila sér til skemmri en ekki síður lengri tíma. Við verðum að reyna að læra af því. Það hefur sýnt sig að fyrirbyggjandi aðgerðir sem sálfræðiþjónusta er skila árangri og auka þar með líkur á að einstaklingar nái að viðhalda heilbrigði og virkni í samfélaginu. Þetta er að mati okkar sem flytjum málið góð forgangsröðun fjármuna sem vel er hægt að rökstyðja sem þjóðhagslegan ávinning. Og talandi um þjóðhagslegan ávinning, talandi um hamingju í samfélaginu, þá hafa menn verið að ræða velsældarhagkerfi. Ég vil fagna því sérstaklega að til að mynda ráðherrar í ríkisstjórn tali um að það þurfi að líta til umhverfislegs ábata, félagslegs ábata, samhliða efnahagslegum ábata. Þetta mál snýst um það. Það er efnahagslegur ábati af málinu, félagslegur ábati og umhverfislegur ábati. Þetta er það sem við þurfum fyrir allt samfélagið. En við erum líka með þessu máli að taka utan um hvern einasta einstakling, hvert einasta líf, og veita þeim tækifæri til að spjara sig innan kerfisins sem við viljum að standi sig almennilega í þjónustu gagnvart einstaklingum, alls konar einstaklingum.
Herra forseti. Algengi sjálfsvíga og geðrænna veikinda er alvarlegt vandamál. Það er í mínum huga kristaltært að við verðum að bregðast við þeim vanda. Það þýðir einfaldlega að við verðum að setja þau mál sem snerta velferð og geðheilbrigði í forgang, megum ekki lengur láta þau sæta afgangi. Kannski er ekki alveg rétt af mér að segja sæta afgangi. Það hefur margt verið gert vel en við verðum að horfast í augu við nútímann. Það er þróun og sem betur fer er vakning. Við tölum miklu meira um geðheilbrigðismál en áður og fólk, ekki síst ungt fólk, gerir kröfu til okkar sem hér erum inni um að líta á geðheilbrigðismál sömu augum og við lítum á líkamlega sjúkdóma. Við höfum hér einstakt tækifæri til að taka höndum saman þvert á flokka og pólitískar línur og hafa raunveruleg áhrif á aðgengi fólks að hjálp. Með því að veita þessu frumvarpi brautargengi á þingi getum við raunverulega greitt aðgengi fólks að fyrirbyggjandi úrræðum og aukið möguleika þess á að takast strax, ekki síðar, ekki einhvern tímann síðar heldur strax, á við sjúkdóma eins og þunglyndi og kvíða sem samkvæmt mælingum virðast bara vera að aukast á meðal ákveðinna hópa eins og til að mynda á meðal ungs fólks.
Við höfum séð það á síðustu dögum í umræðum um fjárlög að við veigrum okkur ekki við að tala um að setja tugi og jafnvel hundruð milljarða í alls kyns samgöngumannvirki, sem er fínt, steinsteypu og innviði. En hér erum við að tala um fjárfestingu í fólki, heilbrigði og velferð og verðmiðinn á slíkri fjárfestingu er auðvitað ekki hár í stóra samhenginu. Ég er handviss um að aukið aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu muni hafa jákvæð þjóðfélagsleg áhrif til lengri tíma og ég er handviss um að hver einasta króna sem fer í að auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónusta gerir að verkum að einstaklingar ná alla vega að eygja möguleika á því að þeir öðlist bata til lengri tíma. Þannig skilar sér þetta margfalt til baka.
Virðulegi forseti. Ég vil leyfa mér að mæla með því að að lokinni umræðu gangi frumvarpið til meðferðar hjá hv. velferðarnefnd og ég vonast til að málið fái þar góðan og skjótan framgang og góða umfjöllun. En umfram allt að við náum að ræða þetta mál aftur í þingsal í 2. umr., í 3. umr., greiða síðan atkvæði um málið og senda það síðan þannig út í heiminn, út í samfélagið með þau skýru skilaboð að við viljum að það sé gert vel við alla, hvort sem fólk hrjáir andleg vanheilsa eða líkamleg.