sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.
Virðulegur forseti. Það er alveg ljóst að bankarnir eru komnir í aðrar aðstæður en voru uppi fyrir nokkrum árum síðan þegar þeir skiluðu töluvert miklum afgangi og voru að endurmeta eignasöfn sín og greiddu ríkinu t.d. afar háar fjárhæðir í arðgreiðslur. Þeir tímar hafa breyst mjög mikið. Það sem við þurfum að líta eftir, tel ég, fyrir utan þann skatt sem ég legg hér til að verði lækkaður — og ég heyri að ég og hv. þingmaður erum sammála um það grundvallaratriði þó að hv. þingmaður telji að við hefðum helst þurft að gera þetta hraðar og fyrr — er að í það minnsta er lagt til að málið verði afgreitt á þinginu og það lögfest. Ef aðstæður sköpuðust til að hraða þeirri skattalækkun meira myndi ég styðja að við gerðum það en að svo komnu máli verður ekki séð að það samræmist öðrum markmiðum sem við höfum.
En hvað er til ráða? Það er t.d. til athugunar í ráðuneyti mínu í dag að skoða skattalega meðferð efnahagsreiknings, þ.e. hvernig verði farið með það þegar bankar vilja fara í víkjandi lán til að byggja upp eiginfjárgrunn sinn. Það hefur komið niðurstaða í bindandi áliti frá yfirskattanefnd um það efni sem ég er að meta, hvort það komi í veg fyrir að bankarnir nýti sér hagkvæmustu leiðir til þess að setja saman eiginfjárgrunn sinn. Síðan verðum við að horfa á hina þættina sem eru áhættuvogin og eiginfjárhlutfallið og eiginfjáraukarnir á hverjum tíma og spyrja: Hvar er því rétt stillt? Þessum aukum hefur verið stillt upp miðað við það að við séum búin að vera undanfarið á toppi hagsveiflunnar og það verður síðan matsatriði stig fyrir stig eða misseri fyrir misseri hvort hleypa þurfi meira súrefni inn í fjármálakerfið (Forseti hringir.) með því að lækka þá þætti.