150. löggjafarþing — 6. fundur,  17. sept. 2019.

sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.

4. mál
[18:11]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek fram að það er auðvitað fagnaðarefni að verið sé að lögfesta lækkunina þó að ég telji hún þyrfti bæði að ganga fram hraðar og hefjast fyrr heldur en hér er gert ráð fyrir. En ástæðan fyrir að ég nefni þetta er að við erum að horfa á 5–6% vaxtamun sem viðskiptavinir íslensku viðskiptabankanna bera ef við berum okkur saman við banka af sambærilegri stærð, t.d. á hinum Norðurlöndunum. Þetta er í raun og veru krónuskattur, getum við sagt. Stór hluti af álaginu er vegna gjaldmiðilsins en því til viðbótar eru auðvitað sérstakrar álögur, bæði skattar og eiginfjárkröfur til bankanna hér á landi í samanburði við hin Norðurlöndin.

Það sem er hins vegar áhyggjuefni er að við erum með alþjóðlega þróun í bankakerfi sem heitir fjártækni, sem er að umbylta bankakerfi og bankaþjónustu á heimsvísu. Bankakerfið okkar er engan veginn í stakk búið til að takast á við einhverja alþjóðlega samkeppni á þeim grunni. Það eina sem í raun og veru er verið að gera í dag mætti kalla einhvers konar tollvernd íslenska bankakerfisins, svipað og við beitum gagnvart landbúnaði, í gegnum krónuna, þ.e. sú einfalda staðreynd að það er erfitt og jafnvel bannað að veita lán til einstaklinga og smærri fyrirtækja í erlendri mynt. Ég veit ekki hversu lengi við getum búið við það umhverfi og veit ekki einu sinni hvort það stenst til lengdar skuldbindingar okkar varðandi frjálst flæði fjármagns. En það er viðbúið að ef við aðhöfumst ekkert varðandi samkeppnishæfni íslenska bankakerfisins getum við þurft að takast á við veruleg skakkaföll í rekstrarumhverfi þess á komandi árum.