sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.
Herra forseti. Já, ég get svarað þessu mjög skýrt. Á meðan Landspítalinn stefnir í 4 milljarða kr. halla á þessu ári þurfa ríkisútgjöldin að vera hærri. Á meðan framhaldsskólarnir eru að fá lækkun á milli ára þurfa ríkisútgjöldin að vera hærri. Á meðan háskólastigið fær minna hér á landi en önnur OECD-ríki og Norðurlöndin, já, þá þurfa ríkisútgjöldin að vera hærri. Á meðan endurhæfingarþjónustan fær lækkun milli ára og SÁÁ er enn þá í sinni klemmu er ástæða til að hafa ríkisútgjöldin hærri og meðan öryrkjar fá ekki sínar sanngjörnu kjarabætur, m.a. með afnámi krónu á móti krónu, já, þá er nauðsynlegt að hafa ríkisútgjöldin hærri.
Að því sögðu þurfum við að auka tekjurnar. Ég hef ítrekað í öllum ræðum mínum í dag og andsvörum bent á leiðir til að við getum aflað tekna til að mæta þeim auknu útgjöldum. Ég veit að dæmið þarf að ganga upp. Þetta þarf að stemma og ég hef bent á margar leiðir, hvort sem það er fjármagnstekjuskatturinn, tekjutengdur auðlegðarskattur eða aukin auðlindagjöld og núna með bankaskattinn. Ég hef einmitt bent á leiðir fyrir hæstv. ráðherra til að mæta þeim auknu ríkisútgjöldum sem ég er að kalla eftir. Ég tel það einfaldlega ekki skynsamlega forgangsröðun á þessum tímapunkti — eða eftir ár, 2021, það er rétt hjá hæstv. ráðherra, það á að gerast 2021 — að ríkið sé að lækka bankaskattinn af öllum sköttum. Þetta eru um 8 milljarðar þegar það er komið til framkvæmda, þetta eru 18 milljarðar á fjórum árum. Meðan verkefnin blasa við í lykilþáttum velferðarþjónustunnar og skólakerfisins held ég einfaldlega að við höfum ekki efni á því að lækka þennan skatt á þann hátt sem hér er gert.