sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.
Herra forseti. Ég er sammála hæstv. ráðherra hvað þetta varðar. Samkvæmt stjórnarskrá má ekki greiða krónu úr ríkissjóði nema það sé samkvæmt fjárlögum eða fjáraukalögum. Ég gat um það fyrr í dag að t.d. í áhættumatinu vegna 2019 stefnir í að gjöldin verði 31 milljarður umfram fjárveitingar. Þetta er algerlega óásættanlegt og ég er sammála hæstv. ráðherra að hér eiga framkvæmdarvaldið og löggjafarvaldið að snúa bökum saman. En þá þurfum við líka að taka þá pólitísku ábyrgð að veita stofnunum fjármuni í samræmi við þær kröfur sem við setjum á stofnanirnar, t.d. Landspítalann. Við samþykkjum fjárveitingar til Landspítalans vitandi að hann mun fara í halla. Það voru svona „usual suspects“, ef svo má segja, sem komu á hverju einasta ári, gerðu það hér á árum áður þegar við reiddum okkur á fjáraukalög, aðilar og stofnanir sem komu aftur og aftur, ár eftir ár, og báðu um meiri fjármuni eða fóru umfram heimildir sínar og það er óásættanlegt.
Ef við treystum okkur ekki til að setja meiri pening í Landspítalann eigum við einfaldlega að segja það. Þá eigum við jafnvel að taka ákvörðun um hvað Landspítalinn eigi ekki að gera. Við þurfum að sníða stakk eftir vexti hvað þetta varðar. Við þurfum að taka hina pólitísku ábyrgð því að fjárveitingavaldið liggur hjá okkur, löggjafarvaldinu, ekki hjá Landspítalanum, ekki hjá hæstv. ráðherra. En það er stór vandi í íslenskri pólitík og alls ekki nýr að stofnanir hér á landi þurfa að virða þær fjárveitingar sem þær fá en við sem hér sitjum þurfum sömuleiðis að veita fjárveitingar sem eru í samræmi við þær kröfur sem við leggjum á þær stofnanir.
Lítið dæmi: Það sem ég óttast, og við sáum það í fyrra, er þegar menn freistast til að grípa til svokallaðs varasjóðs. Við sáum að samgönguráðherra gerði það, greip til svokallaðs varasjóðs til að mæta fyrirsjáanlegri þörf í samgöngumálum. Það held ég að sé þróun sem ráðherrann sé algerlega sammála okkur í fjárlaganefnd um að beri sérstaklega að varast. Varasjóðurinn er alls ekki hugsaðar til að mæta (Forseti hringir.) slíkum atriðum ráðherra. Ég held að freistnivandi ráðherra, sama hvaðan þeir koma, verði mjög mikill til að nýta sér það úrræði til að fá aukapening.