150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

bráðamóttaka Landspítalans.

[10:46]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil ræða ástandið á bráðamóttöku Landspítala við hæstv. fjármálaráðherra. Nú hefur hver starfsmaður bráðamóttöku á fætur öðrum komið fram í fjölmiðlum með neyðarkall til stjórnvalda um aðgerðir og það án tafar, áður en stórslys verður. Nú veit ég ekki hvort hæstv. ráðherra hefur eitthvað orðið var við lýsingar á þeim aðstæðum sem sjúklingum og starfsfólki er boðið upp á á bráðamóttöku en þar sem ráðherrann heldur um veskið er nauðsynlegt að hann átti sig á ábyrgð sinni og þeirri hættu sem fyrir hendi er.

Ég fór ásamt hv. þingkonu Hönnu Katrínu Friðriksson í heimsókn á bráðadeild í gær og það er alveg ljóst að bregðast verður við án tafar og að sögn starfsfólksins innan mánaðar, já, áður en haust- og vetrarflensur skella á. Yfir 200 einstaklingar leita á bráðadeild á sólarhring og er ekki óalgengt að þar séu 50 einstaklingar á hverjum tíma um þau 36 rúm sem þar eru. Það að hafa rúmlega 20 einstaklinga liggjandi á beddum á ganginum allan sólarhringinn, á öllum aldri, í alls konar ástandi vegna slysa, vegna líkamlegra og andlegra veikinda, vímuástands og annars, gerir það að verkum að hættuástand skapast inni á deildinni, bæði fyrir sjúklinga og fyrir starfsfólk. Stundum koma inn tilvik þar sem verður að vera hægt að bregðast hratt við, fara í endurlífgun eða annað og þá verður að vera rými fyrir starfsfólk til að athafna sig. Þá skipta sekúndur máli.

Á þessu ástandi, herra forseti, ber hæstv. ráðherra ábyrgð og því spyr ég: Hvað hyggst ríkisstjórnin gera til að bregðast við núna?