bráðamóttaka Landspítalans.
Virðulegi forseti. Ég verð að lýsa mikilli furðu á því hvernig hv. þingmaður kemur hér og heimfærir ábyrgð af rekstri opinberra stofnana. Ef hv. þingmaður hefur kynnt sér lög um opinber fjármál — ég ætla að leyfa mér að vísa hér til 27. gr. og 34.–36. gr. — þá er skrifað út í þeim lögum hvernig við heimfærum ábyrgð af rekstri opinberra stofnana. Við í þessu þingi erum ekki í daglegum rekstri opinberra stofnana, hvað þá heilbrigðisstofnana. Við erum með stjórnendur á stofnunum sem eru í samtali við fagráðuneyti. Fjármálaráðuneytið er ekki þátttakandi í því samtali. Mér er algjörlega fyrirmunað að skilja hvernig hv. þingmaður geti sagt hér í þingsal: Bráðadeild Landspítalans er á ábyrgð fjármálaráðherra eða fjármálaráðuneytis. Í þessum tilvikum ber stjórnanda stofnunarinnar að gera fagráðuneytinu viðvart og leggja til úrbætur. Fagráðuneytinu ber að svara viðkomandi stofnun innan tilskilins frests sem er skrifaður út í lögum.
Við ætlumst til þess að stjórnendur og fagráðuneyti taki á alvarlegum málum á borð við það sem hér er rætt en að menn fari ekki í einhverja pólitíska leiki í þingsal og vísi ábyrgðinni bara upp í fjármálaráðuneyti þegar svo þykir henta.
Með þessu er ég ekki að gera lítið úr þessari stöðu, við hlustum á það sem starfsfólk á Landspítalanum er að segja, en á sama tíma ætlumst við til þess að það fólk sem er treyst til að stjórna þessum stofnunum bregðist rétt við í samræmi við lögin og að þeir sem mesta ábyrgð bera á faglegri framkvæmd þessara mála séu hér til svara en ekki fjármálaráðherrann sem hefur ekkert með rekstur þeirra stofnana sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið að gera.