bráðamóttaka Landspítalans.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra, tölum um ábyrgð. Í svona ástandi verða stjórnvöld sem fara með peningana að opna augun, mæta á svæðið, hlusta á þá fagaðila sem eru á staðnum. Það dugar ekki að standa hér og hrópa að þau beri enga ábyrgð, að búið sé að auka fjármagn til heilbrigðiskerfisins þegar við vitum öll að aðallega er um að ræða almenn laun og verðbætur, kaup á jáeindaskanna og verið sé að byggja nýtt þjóðarsjúkrahús með tilheyrandi kostnaði, þegar við vitum að ferðamönnum hefur fjölgað umtalsvert sem hafa borið tekjur inn í ríkissjóð.
Þegar hæstv. ráðherra leyfir sér að tala eins og hann beri enga ábyrgð á þessu og vísar í lög um opinber fjármál, tölum þá um lög um opinber fjármál. Hvaða vit er í því að láta fólk vera fast á bráðamóttökunni þar sem sólarhringurinn kostar 230.000 kr. á sama tíma og það kostar 70.000 kr. á öðrum deildum? Tölum um endilega um ábyrgð, hæstv. ráðherra, (Forseti hringir.) sem ekki vill gera samninga við hjúkrunarfræðinga þannig að núna er verið að taka vaktaálag af hjúkrunarfræðingum sem gerir að verkum að það verður fráflæðisvandi, sem gerir (Forseti hringir.) að verkum að bráðamóttaka Landspítala lokast. (Forseti hringir.) Þetta er á ábyrgð ykkar, stjórnvalda.