bráðamóttaka Landspítalans.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður kemur aftan úr einhverri forneskju þegar hún færir fram þau rök í þingsal að fjármálaráðherrann sé með peningavaldið. Það er Alþingi sem hefur fjárstjórnarvaldið, það er Alþingi sem hefur ákveðið hvaða fjárveitingar verða veittar til Landspítalans, það er Alþingi sem hefur sett lög og reglur um það hvernig ábyrgð er heimfærð um framkvæmd heilbrigðismála á Íslandi og lögin eru algjörlega skýr um það að það eru stjórnendur viðkomandi stofnunar sem bera gríðarlega mikla ábyrgð og mesta ábyrgð. (Gripið fram í.) Þegar þeir ráða ekki við þá ábyrgð sem þeim er falin að lögum ber þeim að taka upp samtal við ráðuneytið og það er skrifað út í lögunum hvað á að gerast í framhaldi af því.
Það að koma hér upp og vísa bara í fjármálaráðuneytið þegar það er rekstrarvandi í einstökum stofnunum er ódýr pólitík. Þetta er misheppnuð pólitík og þetta er á skjön við allt sem við höfum komið okkur saman um í útskrifuðum lögum um það hvernig fjárstjórnarvaldið er. Fjárstjórnarvaldið er á Alþingi. Alþingi hefur kveðið upp úr með það hvaða fjárheimildir eru til þessarar stofnunar til þessa rekstrar (Forseti hringir.) og fagráðuneytin verða að koma að málum. Ábyrgð stjórnenda er mikil. Ábyrgð fjármálaráðuneytisins er að taka þátt í því samtali.