150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

hugbúnaðargerð fyrir ríkið.

[10:53]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Í svari frá hæstv. ráðherra við fyrirspurn hv. þm. Smára McCarthys á seinasta þingi kom fram að hugbúnaður sem er í daglegu tali kallaður Orri sé í eign Oracle og eftir atvikum Advania. Einnig er spurt hvers vegna kóðinn og hugbúnaðurinn sé ekki gefinn út opinberlega í samræmi við stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað. Svarið við því er að ríkið á ekki höfundaréttinn að Orra.

Nú er ansi margt hægt að segja um Orra og hefur ansi margt verið sagt um Orra en árið 2014 skilaði stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd áliti þar sem framsögumaður var hv. þm. Brynjar Níelsson og þar kemur fram, með leyfi forseta:

„Nefndin telur nauðsynlegt að við undirbúning á útboði á rekstri kerfisins, sem nú er unnið að, og uppfærslu á kerfinu, sem fram undan er, þurfi að nýta þær ábendingar sem komið hafa fram og m.a. endurskoða eignarhald á kerfinu, sem ríkið hefur einungis notendaaðgang að, þannig að kerfið og þær breytingar sem gerðar eru á því verði eign ríkisins sem geti þar með nýtt það fyrir allar stofnanir án þess að þurfa að kaupa aðgang fyrir hverja og eina.“

Með þá skoðun á þeim tíma, og sá sem hér stendur undirritaði einnig þetta álit, kom mjög skýrt í ljós að fólk hafði miklar efasemdir um að ríkið væri að fjármagna sérsmíðaða hugbúnaði sem enda síðan ekki í eignarhaldi ríkisins. Því miður hefur mér í gegnum árin sýnst þetta vera ákveðin venja, að opinberar stofnanir þurfa sérlausnir, jafnvel sérsniðnar að sínum þörfum, ráða eitthvert hugbúnaðarfyrirtæki sem er eflaust fínt og frábært, eins og Advania, til að búa til þá lausn en svo á framleiðandinn enn þá vöruna og ríkið er fast í viðjum þess fyrirtækis það sem eftir er ef ekki á að byrja upp á nýtt. Þetta þykir mér mikill löstur á viðskiptaháttum opinberra stofnana og með hliðsjón af því sem kom fram 2014 þegar Orri, þetta risavaxna kerfi, var til umræðu langar mig að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hann viti til þess að þetta hafi eitthvað verið rætt í ráðuneytinu eða undirstofnunum þess síðan þá eða hvort staðið hafi til að móta einhverja stefnu í kringum það hvernig eignarhaldi skuli háttað á hugbúnaði (Forseti hringir.) sem ríkið fjármagnar framleiðslu á.