hugbúnaðargerð fyrir ríkið.
Virðulegi forseti. Ég get ekki annað en fagnað viðleitni hæstv. ráðherra vegna þess að þetta er nákvæmlega hárrétt. Það er líka rétt, sem hæstv. ráðherra segir, að kannski er ekki mikill skilningur á því almennt í samfélaginu, eða jafnvel hér á þingi, hversu mikilvægt þetta er. Þarna er um ákveðið grundvallaratriði að ræða. Þegar ríkið kaupir eitthvað sem er sérstaklega hannað fyrir ríkið, segjum að það sé hús eða bíll, á ríkið vitaskuld að geta fengið hvaða verktaka sem er til að laga það hús eða að byggja við það eða hvaðeina, og þann bíl. Það sama á auðvitað að gilda um hugbúnað.
Það sem hvatti mig til að spyrja að þessu í dag er að í gegnum tíðina hef ég orðið þess áskynja að það sé svolítið venjan að hugbúnaðarhús stingi jafnan upp á því að þau eigi hugbúnaðinn en viðskiptavinurinn fái notendaleyfi, hann megi nota hann að eilífu og gott og vel með það. En svo vandast málið. Svo þarf að bæta einhverju við. Þá er það erfitt vegna þess að viðkomandi hugbúnaðarhús vill það ekki eða getur það ekki vegna þess að það er of dýrt.
Ég hvet hæstv. ráðherra til dáða í þessu og vona að fljótlega komi fram stefna sem geri það alveg skýrt (Forseti hringir.) að þegar ríkið framleiðir hugbúnað, hvort sem það er innan opinberra stofnana eða í viðskiptum við hugbúnaðarhús, sé það ríkið sem eigi afrakstur þeirrar vinnu sem fjármögnuð er.