300 þús. kr. lágmarksframfærsla almannatrygginga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir ræðuna. Það er sérstaklega athyglivert að hann talar mikið um mál Flokks fólksins sem við lögðum fram á síðasta þingi og fyrrverandi þingflokksformaður flokksins, Ólafur Ísleifsson, flutti, mál um 300.000 kr. lágmarksframfærslu launatekna. Þeir góðu útreikningar sem hv. þingmaður vísar til voru keyptir af Flokki fólksins. Við höldum bara áfram á þeirri vegferð og það sérstaka mál sem við tölum hér um lýtur eingöngu að framfærslu í sambandi við almannatryggingakerfið og þeim sem þurfa að reiða sig á framfærslu þaðan. Þetta er fyrsta málið af fimm í forgangspakka Flokks fólksins sem lýtur að velferð.
Það er annað mál sem er kannski ekki ástæða til að ræða hér og nú en það er einmitt 350.000 kr. lágmarksframfærsla launatekna í landinu. Viðmiðin eru skýr. Þar eru greinargerðir og útreikningar og allt sem ég efast ekki um að hv. þingmaður hlakki til að fá að sjá. Hvað kostnaðinn varðar er eitt af þessum fimm forgangsmálum að vaða í það hvernig við náum í fé til að fjármagna hátt í 40 milljarða sem ríkissjóður mun verða af við velferðarpakka Flokks fólksins. Ég fann mig knúna til að koma hingað upp og segja að þetta væri í raun bara fyrsta skrefið í framsögu á velferðarpakka Flokks fólksins á þessu þingi og ég er ákaflega stolt af því.