300 þús. kr. lágmarksframfærsla almannatrygginga.
Forseti. Mig langar bara að setja inn í þessa umræðu samhengið frá hruni. Það er í lögum að hækka skuli lífeyri í samræmi við verðlagsþróun í landinu. Síðan verður launaþróun, ég held verðlagsþróun líka — ókei, hv. þm. Inga Sæland er að leiðrétta mig, að þetta eigi bara við um launaþróunina. Það eru tveir faktorar þarna, ég man ekki hver hinn er, en a.m.k. er launaþróunin. Þessu er síðan kippt úr sambandi og á meðan aðrir fara hægt og rólega upp í launum eða þeim heimilistekjum sem þeir fá eftir hrunið er þessu kippt út í hverjum einustu fjárlögum. Nei, það gengur ekki núna og ekki næst, er sagt.
Þetta safnast upp. Mig minnir að það hafi verið búið að safnast upp í 17 milljarða þegar ég skoðaði þetta og nú er það komið upp í 29% skerðingu sem hefur orðið.
Þingmenn lentu líka í því að sitja eftir eftir hrun, meira að segja lækka launin sín eitthvað. Með úrskurði kjararáðs sem þingið vildi ekki snúa við skjótast þingmennirnir langt fram úr almennri launaþróun. Svo hefur það verið fryst síðan þá, á árinu 2016, þegar kjararáð tók þessa ákvörðun. Í upphafi næsta árs náum við jöfnunarpunkti af því að forsætisnefnd lækkaði eitthvað aðrar greiðslur. Þingmenn eru samt enn með laun umfram almenna launaþróun. Það er raunveruleikinn í stöðunni og þegar þessi hækkun var gerð var hún meira að segja afturvirk. Þingmenn eru búnir að fá sinn skaða bættan og vel það, þ.e. að hafa setið eftir í einhvern tíma, en öryrkjar eru ekki búnir að fá leiðréttingu.
Þetta er gott frumvarp. Ég veit að hv. þm. Inga Sæland er vel inni í þessum málum og ég vona að í nefndarvinnunni verði framfærsluviðmiðin skoðuð. Þau eru úti um allt. Eru þau fjögur? Einhvern tímann rakst ég á fjögur framfærsluviðmið. Það þarf að sameina þau. Það þarf að fá skýrt fram hverjar tekjur heimilisins þurfa að vera til að ráða við framfærslu. Það þarf að sameina það hver grunnframfærsluþörfin er því að annars benda menn bara út og suður. Viðmiðið er hæst í þessu sem félagsmálaráðuneytið gerir en námsmenn eru með mjög lágt viðmið, þeir þurfa greinilega minna.
Ég styð það að loksins sé komið til móts við lífeyrisþega sem sátu eftir og ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir að hafa flutt þetta frumvarp.