150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

300 þús. kr. lágmarksframfærsla almannatrygginga.

17. mál
[12:18]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Það þarf sannarlega heildarendurskoðun á þessu kerfi. Þeir sem munu fylgja því eftir þegar á endanum verður farið í það skulu þá vera mjög varkárir með það að þeir sem vilja ráða því hvernig kerfið lítur út nýta oft svoleiðis tækifæri til að gera þau verri. Það er einhvern veginn samstæðara en ekki endilega betra fyrir þá sem þurfa að reiða sig á kerfið. Maður verður að vera mjög vakandi fyrir því, það opnar á alls konar tækifæri fyrir þá sem finnst að þeir sem eru á lífeyri eigi ekki að njóta þeirra lífskjara sem Flokkur fólksins vill að þeir geri.

Í lögum um almannatryggingar segir að þessi hækkun eigi að verða, þ.e. fylgja launaþróuninni. Nú eru þingmenn komnir á þann stað líka með breytingum á kjararáði. Eftir kjararáðsskandalinn er búið að leggja niður kjararáð og ákveða að laun þingmanna, ráðherra og annarra sem geta ekki samið um sín launakjör beint fylgi almennri launaþróun. Hvers vegna á ekki að gera nákvæmlega það sama með þá sem þiggja lífeyri og geta þar af leiðandi ekki samið um sín kjör, ellilífeyrisþega og öryrkja? Ég myndi segja að þetta ætti að taka saman í einn bálk, binda hækkanir á kjörum lífeyrisþega við hækkanir á kjörum annarra sem geta ekki samið um kaup og kjör sín eins og þingmenn. Þá værum við búin að festa það saman að þingmenn geta ekki látið öryrkja og aðra lífeyrisþega sitja eftir.