loftslagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi.
Herra forseti. Frá því að þessi ríkisstjórn tók við er einn sjötti tímans fram að skuldadögum 2030 liðinn. Mikilvægi þess að brugðist sé vel við loftslagsvá er ekki vanmetið af neinum sem vill láta taka sig alvarlega. Vissulega er búið að gera margt á síðustu tveimur árum en flest af því hefur varðað stjórnsýslubreytingar og undirbúning fyrir það að geta farið að hefjast handa við að draga úr. Og úr hverju þarf að draga? Losun á koltvísýringi og öðrum gróðurhúsalofttegundum sem nemur 130.000 tonnum á ári, hvert einasta ár fram til ársins 2030. Þetta er ekki lítið verkefni, þetta er risaverkefni. Það að einn sjötti tímans sé liðinn frá því að þessi ríkisstjórn tók við gerir að verkum að maður neyðist til að spyrja sig hvort þetta muni nást.
Það er ýmislegt sem við gætum gert sem við höfum ekki verið að gera. Það væri t.d. hægt að gera kröfu um það í lögum um opinber fjármál að gerð sé grein fyrir öllum kolefnisfótsporum ríkisins í fjárlögum, a.m.k. í fjármálaáætlun. Jafnframt væri hægt að ná miklum árangri með skjótum viðbrögðum. Við vorum fyrir skemmstu með heilan dag á þinginu sem fór í neyðarbreytingar á fiskveiðistjórnarlögum. Nú kalla börnin þetta neyðarástand. Væri ekki mögulegt að bregðast við með svipuðum hætti og keyra í gegn þá löggjöf sem þarf til að við höfum möguleika á því að ná markmiðinu?
Það er óþarfi að gera þetta að einhverju tilfinningamáli. Við vitum öll hvert verkefnið er. Við vitum öll hvað þarf að gera og við vitum líka um mikilvægi þess að þetta sé gert, ekki bara á Íslandi heldur alls staðar í heiminum. Ef við bregðumst ekki við núna af fullum krafti er hætt við því að við munum ekki ná þessu. (Forseti hringir.) Tími mannsins á jörðinni sem farþega er liðinn. Nú verðum við að bera fulla og ófrávíkjanlega ábyrgð á geimskipinu jörð.