loftslagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi.
Virðulegi forseti. Við ræðum loftslagsmál, eitt brýnasta mál samtímans, sem fléttast inn í daglegt líf okkar allra og inn í allar ákvarðanir sem við tökum á Alþingi. Ég fagna öllum þeim verkefnum sem eru í gangi til að bregðast við, eins og hæstv. forsætisráðherra fór yfir í upphafi umræðunnar. Nýtni, hagsýni og nýsköpun hafa oft verið taldar andstæður en eru í raun einn grundvöllur viðsnúnings í loftslagsmálum. Við þurfum nýja hugsun til að hætta að henda dóti eða ljóta grænmetinu, innmatnum úr sláturdýrunum eða blöðunum af gulrótunum. Við verðum að nýta matvæli betur og koma því sem ekki er notað beint út í hringrásina aftur. Við getum ekki bara lifað á fullkomlega löguðu grænmeti og lambahryggjum. Það er fleira sem fellur til. Í sjálfsþurftarbúskap fyrri alda var nýtt hver arða sem var framleidd, ekki bara bestu bitarnir. Við þurfum að blanda saman gamalli þekkingu og nýrri til að nýta enn betur það sem nærumhverfið gefur af sér. Gott dæmi um slíkt er ræktun og vinnsla á repju og nepju en þar verða til þrjár afurðir, olía, fóðurmjöl og stönglar, sem allar saman nýtast. Við í þingflokki Framsóknar höfum einmitt lagt fram þingsályktunartillögu um eflingu á ræktun slíkra orkujurta á Íslandi.
Á heimsvísu verður að leggja miklu meiri áherslu á endurheimt landgæða með landgræðslu og skógrækt. Ísland miðlar 100 ára reynslu af landgræðslu í gegnum Landgræðsluskóla Sameinuðu þjóðanna og nýlega undirritaði umhverfis- og auðlindaráðherra fyrir hönd Íslands viljayfirlýsingu við Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna um landgræðslu í Afríku. Það er algjörlega frábært verkefni því að uppgræðsla lands er eitt af mikilvægustu verkefnum alþjóðasamfélagsins. Með henni er hægt að slá margar flugur í einu höggi, vinna gegn loftslagsbreytingum, bæta lífsgæði fjölda fólks og fækka fólki á flótta.
Um þetta eigum við að hafa hátt og útrýma eyðimörkum heimsins.