150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

loftslagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi.

[12:54]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir að hefja þessa þörfu umræðu um loftslagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi og hæstv. ráðherra fyrir að vera hérna með okkur í dag. Það er enginn vafi á því að hlýskeið er hafið á móður jörð. Deilt er um ástæður þessa en okkur í Flokki fólksins þykir full ástæða til að leggja vandlega við hlustir þegar talað er um að þessi vá sé af mannavöldum. Margt bendir til að svo sé.

Í þessari umræðu er iðulega talað um mengandi útblástur og gróðurhúsalofttegundir og það verði að minnka þessa losun. Ef við Íslendingar ætlum að vera marktæk í umræðunni hljótum við að verða að ganga á undan með góðu fordæmi. Við getum ekki gert kröfu um að aðrar þjóðir minnki sína losun meðan við gerum fátt eitt sem skiptir máli til þess að draga úr okkar eigin.

Við erum á Íslandi svo lánsöm að búa að verulegu leyti við orku- og hitagjafa sem losa ekki mengandi útblástur og þar á ég við rafmagn, gufu og heitt vatn. Við þurfum ekki að brenna olíu, gasi og kolum til að búa til hita og straum. Hins vegar kemur fram í ágætri grein eftir Hjörleif Guttormsson, náttúrufræðing og fyrrverandi þingmann, í Morgunblaðinu í dag að við Íslendingar erum með háa losun á íbúa þrátt fyrir okkar endurnýtanlegu orkugjafa.

Hvernig getum við minnkað losun okkar á svokölluðum gróðurhúsalofttegundum? Hvar losum við mest með útblæstri hér á landi? Við verðum að líta til stóriðjunnar, álveranna, kísilveranna. Við verðum að líta á flugsamgöngur, við verðum að líta á skipaumferð. Erum við reiðubúin að hætta byggingu nýrrar stóriðju og jafnvel loka þeim sem þegar eru í rekstri? Erum við tilbúin að draga úr flugumferð til landsins? Erum við reiðubúin að takmarka siglingar, komur og brottfarir skemmtiferðaskipa til landsins? Það er alveg ljóst að bæði farþegaþotur og skemmtiferðaskip menga mjög mikið.

Hvað með sjávarútveginn? Eigum við kannski að breyta áherslum þar og draga úr togveiðum þar sem miklu af olíu er brennt og láta útgerðir þess í stað leggja áherslur á veiðar með kyrrstæðum (Forseti hringir.) veiðarfærum eins og nót? Staðreyndin er sú að hvað sem við gerum krefst það ákveðinna fórna. Spurningin er bara hversu tilbúin við erum og hversu langt við viljum ganga. Við eigum bara eina jörð.