loftslagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi.
Frú forseti. Við lifum mikla spennutíma í umhverfi okkar. Það liggur eitthvað í loftinu, það er uggur í fólki úti um allan heim, ekki síst ungu fólki sem rís upp og spyr: Hvað um framtíðina? Eigum við okkur framtíð? Það sem var rætt um fyrir örfáum áratugum sem óþægilega mengun er nú komið á svo alvarlegt stig að talað er um hamfarir, jafnvel neyðarástand, og að mannkynið færist æ nær þverhnípi, að við séum í alvarlegri baráttu við tímann og eins og við högum okkur núna séum við ekki á framtíðarvegi heldur glötunarvegi.
Hafið sem við eigum allt undir er mér sérstaklega hugleikið í þessu sambandi. Fyrir okkur íbúana á norðurslóðum, t.d. fyrir vestnorrænu þjóðirnar, eru loftslagsbreytingar ekki lengur einhver óljós framtíðarógn, því miður. Þetta er orðinn hluti af bláköldum veruleika dagsins. Við horfum upp á jöklana bráðna, skreppa hratt saman og brotna í sjó fram. Þetta sjáum við á Grænlandi og við sjáum það á Íslandi. Við óttumst um afdrif fiskstofnanna vegna hlýnunar og súrnunar sjávar, og plastmengun í höfunum er orðið stórfellt vandamál og gegnumsýrir alla fæðukeðjuna.
Umhverfisbreytingar dynja á norðurskautinu þar sem við upplifum tvisvar til fjórum sinnum hraðari loftslagsbreytingar en á öðrum svæðum jarðarinnar að meðaltali, miklu hraðari breytingar en nokkurn óraði fyrir.
Og hvað aðhöfumst við svo hér á landi, á Íslandi? Leggjum við allt í sölurnar? Í núverandi stjórnarsáttmála segir orðrétt að meginforsenda loftslagsstefnu ríkisstjórnarinnar sé að „koma í veg fyrir neikvæð áhrif loftslagsbreytinga á lífríki hafsins“.
Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Hvernig birtist þessi meginforsenda? Hefur ríkisstjórn Íslands verið að efla vísindastarf um rannsóknir á súrnun sjávar? Hefur Hafrannsóknastofnun fengið fjárframlög til að efla rannsóknir? Hafa íslensk stjórnvöld styrkt alþjóðlegt samstarf vísindamanna sem stunda rannsóknir á súrnun sjávar?
Við verjum u.þ.b. 2% af vergum þjóðartekjum til þessa málaflokks. (Forseti hringir.) Endurspeglar það djúpan skilning stjórnvalda á núverandi ástandi, alvarlegasta vanda sem mannkynið hefur staðið frammi fyrir? Mér er það til efs.