150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

loftslagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi.

[12:59]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Þetta er góð umræða. Kannski ættum við að hafa reglulega umræðu um loftslagsmál í þessum sal. Hæstv. forsætisráðherra fór í máli sínu áðan ágætlega yfir nokkrar af þeim aðgerðum sem verið er að ráðast í þegar kemur að aðgerðum gegn breytingum. Það var engan veginn tæmandi listi og mér duga ekki þær tvær mínútur sem ég hef til umráða til að fara yfir þann lista.

Er nóg að gert? Nei. Að sjálfsögðu ekki. Vandinn er slíkur að þetta er ekki eitthvað sem við gerum á einu ári. Það er akkúrat það sem hæstv. ríkisstjórn horfist í augu við og hefur þess vegna lagt fram aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem er endurskoðuð á hverju einasta ári og uppfærð. Það er farið yfir þær aðgerðir sem verið er að gera, ekki bara markmiðin. Hér getum við talað og ég get sett á mínúturæðu með háleitum hugsjónum mínum en aðgerðirnar eru það sem skiptir máli. Þær er verið að vinna og verið að bæta við og bæta við. Þannig verðum við að vinna þetta öll saman.

Við þurfum engu að síður háleitar hugsjónir. Ég hef talað fyrir því að við eigum að horfa á allt samfélagið og allt stjórnkerfið út frá loftslagsmálum. Við eigum að horfa á innflutning okkar og neyslu. Við eigum að horfa á matvælaframleiðslu og bankakerfið, nýta það til að styðja aðgerðir og verkefni sem nýtast okkur í baráttunni gegn loftslagsvánni o.s.frv.

Forseti. Þetta er góð umræða. Það er samhljómur hérna. Fólk kemur með fínar hugmyndir. Þó get ég ekki annað en komið inn á það að mér fannst athyglisvert að heyra hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson skera sig dálítið úr í þessari umræðu. Það var ekki annað á honum að skilja en að það besta sem við gerðum í baráttunni gegn loftslagsvánni væri að koma hér upp nýjum álverum. Hefur hv. þingmaður aldrei heyrt um landsmarkmið sem hvert land setur sér líka? Þessi 20. aldar hugsun og 20. aldar rök um álverin í Kína er að verða dálítið þreytt en það er gott að það er einangruð hugsun og einangruð skoðun hér á þingi.