150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

loftlagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi.

[13:07]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði að fjalla um annað í þessari sérstöku umræðu en eftir ræður hv. þingmanna Miðflokksins verð ég aðeins að bregðast við ræðum þeirra og orðræðunni sem kemur úr þeirri átt almennt. Þar er mikið lagt upp úr því að taka tillit til staðreynda og vísinda og samhengis. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði áðan að við gætum ekki leyst þetta með því að láta eins og við værum í einhverri sænskri hippakommúnu. Ég get frætt hv. þingmann og alla sem eru hans megin í pólitík um að það eru vísindin, staðreyndir og samhengi hlutanna sem sýna okkur fram á loftslagsvána og af hvaða völdum hún er. Hún er af margvíslegum völdum, þar á meðal mikið til af völdum manneskja sem losa út í andrúmsloftið t.d. koltvísýring, metan o.fl. Það eru vísindin sem segja okkur þetta. Það er engar sænskar hippakommúnur sem gera það.

Mér finnst frekar pirrandi að hlusta á hv. þingmenn tala um vísindin eins og það séu ekki vísindin sem leiða okkur á þá braut að ætla að takast á við þennan vanda, eins og vísindin segi okkur að halda aðeins aftur af okkur, passa okkur á gjöldunum, eins og það séu vísindin og staðreyndirnar sem gefi til kynna að við eigum að passa okkur á að hafa ekki of hátt gjald á hinu eða þessu. Eins og það séu vísindin sem segja okkur að það eigi að breyta þessu í eitthvert stríð milli landsbyggðar og höfuðborgar.

Virðulegur forseti. Slæmur brandari. Góður væri hann ef hann væri fyndinn en hann er því miður fyrst og fremst sorglegur. Það sést á þessum málflutningi hv. þingmanna Miðflokksins sér í lagi. Það er ódýrt, einfalt og þægilegt að stilla sér einfaldlega upp á móti öllu sem gæti verið óþægilegt og verður óþægilegt við að takast á við þennan vanda. Talandi um pólitískan rétttrúnað, fyrr má nú vera, virðulegi forseti.