150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

loftslagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi.

[13:11]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Einn erfiðasti hjallinn fyrir okkur Íslendinga er að losun núna hér á landi er mun meiri en viðmiðunarárin 2005 og síðan 1990. Það hafa verið gerð drög að samningi við ESB um þátttöku Íslands í ákveðnum geirum, innan landbúnaðarins, sjávarútvegs, sem er fagnaðarefni, vegasamgangna, iðnaðar utan stóriðju og fleiri. Í þessum geirum á að minnka losun um 40% að meðaltali innan ESB miðað við árið 2005 en hér á Íslandi er það 29%. Það er fagnaðarefni að engu að síður skuli stefnt að 40% eins og ríkisstjórnin leggur til. Þó verð ég að segja að mér er til efs þegar ég horfi yfir í Ráðhúsið að allir stjórnarflokkarnir séu með forsætisráðherra á þeim vagni þótt ég viti mætavel hver hugur forsætisráðherra í þessum málum er.

Innan ESB er nú rætt um að aðildarríkin auki metnað sinn í 55% samdrátt miðað við 1990, enda liggur fyrir að Parísarsamkomulagið dugar hvergi til að takmarka hlýnun jarðar vel innan við 2°C. Það lætur nærri að það sé innan við 3°C.

António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hefur hvatt aðildarríkin til að kynna nýjar tölur á þessum gríðarlega mikilvæga leiðtogafundi í New York innan tíðar. Það liggur fyrir að ESB ætlar að fara þangað og þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hver eru þessi nýju markmið? Hafa þau verið rædd innan ríkisstjórnar? Hvert verður umboð Katrínar Jakobsdóttur? Það er rétt að geta þess að við í Viðreisn styðjum hana heils hugar til að láta Ísland vera í forystu í þessum málum. En ég vil gjarnan fá að vita hvort búið sé að ræða þetta innan ríkisstjórnar, hvort Ísland muni kynna ný markmið og svara kalli aðalritara Sameinuðu þjóðanna.

Ég er ansi hrædd um að það sé ekki þessi mikla eining innan ríkisstjórnarinnar þegar kemur að metnaði varðandi loftslagsmál. Þó að aðgerðaáætlun ein og sér kunni að vera ágæt nær hún ekki að koma okkur þangað sem við viljum vera.(Forseti hringir.) Við viljum ekki vera á afneitunarstiginu heldur viljum við vera í forystu þjóða til að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda.