150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

loftslagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi.

[13:14]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir þessa umræðu. Staðreyndin er sú að við Íslendingar erum umhverfissóðar. Við sóðum alveg ótrúlega mikið út í sorpi, loftmengun og á annan hátt. Við erum með mengunarkvóta til sölu og reynum á furðulegan hátt að takmarka minnstu mengunina á sama tíma og við stingum hausnum í sandinn og látum sem við sjáum ekki það sem mengar mest.

Ég horfði á tvo þætti á Stöð 2 um plastmengun, sláandi þætti sem sýna svart á hvítu hvernig mannskepnan umgengst náttúruna á ótrúlega fáránlegan og óviðeigandi hátt. Í öllu þessu samhengi verðum við að passa okkur þegar við setjum á nýja skatta um losanir, urðun úrgangs og allt sem varðar loftslagsmál að láta þá ekki bitna á þeim sem síst skyldi, fólki sem er ekki að menga og hefur ekki efni á því. Það er hellingur af fólki sem er ekki á bíl, hefur ekki efni á að kaupa flotta hluti og er ekki að menga. Það hefur ekki efni á því. Við hin sem höfum efni á því, erum á siglingu á skemmtiferðaskipunum og fljúgum eigum að borga skattinn. Við eigum að sjá til þess að að skatturinn sé rétt innheimtur. Okkur ber líka skylda til að hlusta á börnin okkar. Þau eru búin að átta sig á því sem við virðumst enn stinga hausnum í sandinn yfir sem er að mengunin mun drepa okkur fyrr eða síðar ef við gætum þess ekki að losunin verði í lágmarki.