150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

loftslagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi.

[13:16]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég er sammála hæstv. forsætisráðherra um að það virðist vera meðbyr, bæði hjá almenningi, fyrirtækjum, verkalýðshreyfingu, mörgum sveitarfélögum, meira að segja aðeins hér innan húss líka. En við þurfum að gera betur. Framreikningar úr síðustu skýrslu Umhverfisstofnunar vegna loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna sýna að það muni nást 19% samdráttur á losun gróðurhúsalofttegunda til ársins 2030 á meðan samningurinn við ESB kveður á um að Ísland skuli draga úr 29% miðað við losun árið 2005 og markmið ríkisstjórnarinnar er enn sem fyrr 40%, þannig að við þurfum að gera betur og nota þennan meðbyr til þess. Það eru aðeins 2% af fjárlögum veitt til loftslagsmála.

Mig langar að nefna hér orkuskipti í samgöngum af því að fólk talaði dálítið um þau. Þau eru gríðarlega mikilvæg og ótrúlega stór hluti af þessu en samt mun hinn vondi eiginleiki einkabílsins verða eftir, sem er ekki orkugjafinn heldur hreyfanleiki bílsins. Hann gerir það að verkum að við byggjum módel á grunni hinnar bandarísku bílaborgar, eins og við höfum gert á 20. öldinni, þar sem við dreifum of mikið úr okkur, byggjum of mikið af stofnbrautum sem kalla á aðrar stofnbrautir og mislæg gatnamót og meiri ferðalög. Orkuskiptin eru góð en við þurfum líka að huga að fjölbreyttari samgöngumátum, almenningssamgöngum, hjólreiðum, göngu. Mér finnst skorta meiri áherslu í markmiðum ríkisstjórnarinnar á hið byggða umhverfi. Hér búa á Íslandi í bæjum þrátt fyrir allt um 85% allra, í bæjum og borg. Í heiminum verður hlutfallið orðið 70% árið 2050. Við þurfum að fókusera á hlutina þar sem við náum mestum árangri og það er í byggðu umhverfi. Mér finnst að ríkisstjórnin eigi að gera betur.

Að því sögðu fylgja mínar bestu óskir til hæstv. forsætisráðherra á þingið á næstu dögum og ég vona að hún verði með ný og metnaðarfull tíðindi.