virðisaukaskattur.
Frú forseti. Já, hv. þingmaður á svo sannarlega hauk í horni þegar kemur að svona breytingum. Ég er svo sannarlega til í að skoða þær með opnum huga. Ég þakka sérstaklega fyrir þau orð hv. þingmanns þar sem hann tekur jákvætt í að skoða að útvíkka það frumvarp sem hann leggur hér fram og láta það hugsanlega ná til heimilishjálpar og heimilisþrifa. Mér finnst hugmyndir hv. þingmanns um að draga slíka þjónustu frá tekjuskattsstofni mjög áhugaverðar. Ég hef sömuleiðis haft talsverðan áhuga á því hvort við ættum að útvíkka frádráttarheimildir þegar kemur að því að fólk styrkir góðgerðarsamtök eða menningarsamtök. Það væri jafnvel hægt að búa til hvata til að draga mætti upphæðina tvöfalt frá. Það má búa til margs konar hvata í gegnum skattkerfið. Ég held að fjárhagslegir hvatar skipti máli og ég held að við þurfum í sjálfu sér ekki að óttast að við séum að gera skattkerfið eitthvað flóknara í ljósi þeirra hagsmuna sem hugsanlega koma á móti. Ég hlakka til að sjá frekari vinnu hv. þingmanns hvað það varðar. Það eru ýmsar leiðir fyrir okkur sem samfélag til að koma á móts við einstakar stéttir sem hugsanlega starfa undir yfirborðinu eða menningarstarfsemi eða góðgerðarsamtök sem reiða sig á frjáls framlög fyrirtækja og fólks. Þá skiptir miklu máli, frú forseti, að ríkisvaldið sé ekki fyrir heldur frekar í því hlutverki að liðka til í þeim efnum.