150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

virðisaukaskattur.

10. mál
[13:57]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Frú forseti. Það er mögulegt að efni þessarar ræðu hefði komist fyrir í tveimur andsvörum en vegna nýgerðra breytinga á þingsköpum Alþingis, þar sem mönnum er bannað að koma upp í samsvör, var ég svo hræddur um að vera rekinn úr ræðustól að ég ákvað að setja hugsanir mínar frekar fram í ræðu en í andsvörum við hv. þm. Óla Björn Kárason. Í stuttu máli líst mér vel á þetta mál og ég held að það hafi verið eitt af fáum jákvæðum skrefum sem ríkisstjórnin 2009–2013 steig á sínum tíma að taka virðisaukaskatt af launalið viðhalds og vinnu á byggingarstað.

Ég er líka sammála hv. þingmanni — og þetta hefði ég ekki mátt segja í andsvari — um að það voru í sjálfu sér mistök að taka þetta af árið 2015. Nú er það þannig að sá sem hér stendur var til margra ára innheimtumaður ríkissjóðs og þykir mjög vænt um ríkissjóð. Þess vegna er ég tilbúinn til að gera ansi margt til að koma í veg fyrir svarta atvinnustarfsemi og reyna að draga upp á yfirborðið sem mest af þeirri verðmætasköpun sem fram fer í landinu. Af þeim ástæðum er ég mjög hrifinn af þessu máli. Sá dagur kemur vonandi að hér í Reykjavík verði borgaryfirvöld sem gera fólki kleift að byggja yfir sig sjálft en gangi ekki undir auðmönnum og byggingarfyrirtækjum sem eru að reisa rándýrar íbúðir fyrir auðkýfinga í miðborg Reykjavíkur, allt til að auðkýfingarnir geti hjólað í miðbæinn. Ég vona að á næstunni verði borgarstjórn hér í Reykjavík sem geri fólki aftur kleift að byggja yfir sig sjálft líkt og hefur verið að gerast í nágrannasveitarfélögum eins og í Mosfellsbæ og víðar. Þessi tillaga kemur mjög vel inn í slíka starfsemi og því er mjög mikilvægt að taka á þessu með þessum hætti.

Það er líka annað sem er athugunarefni og kem ég þá aftur að svartri atvinnustarfsemi, þar sem hún er hér lögð undir. Það væri ráð fyrir hv. þm. Óla Björn Kárason og félaga hans að hlusta á varnaðarorð okkar Miðflokksmanna í því að reyna að sporna við svartri atvinnustarfsemi. Það kom m.a. fram um daginn, í síðbúnu svari hæstv. fjármálaráðherra við fyrirspurn þess sem hér stendur, að á hverju ári megi reikna með því að 80 milljarðar kr. séu svamlandi í hagkerfinu án þess að greidd séu af þeim gjöld. Í fjárlagafrumvarpinu, þó að það sé ekki til umræðu hér, kemur ekki fram að til standi að reyna verulega að ná í eitthvað af þessu þegar álagða fé, reyna að ná í þessar svörtu tekjur. Þess vegna fagna ég því að sjálfsögðu að hér komi fram tillaga sem er til þess fallin að draga úr hættu á því að menn svíki undan skatti.

Það verður að segjast, þó að menn eigi ekki að alhæfa, að því miður virðist vera mjög erfitt að koma í veg fyrir svarta atvinnustarfsemi í byggingariðnaðinum. Nú ætla ég ekki að draga allan þann iðnað til ábyrgðar en það virðist vera erfiðleikum háð að sporna þar við. Ég tel því að þetta sé gott mál og styð eindregið tillögur sem koma fram á þinginu til að hjálpa fólki til að hjálpa sér sjálft. Þess vegna held ég að þessi tillaga geti orðið til góðs. Í sjálfu sér vona ég að þetta mál fái góðan framgang en um leið vil ég beina því til flutningsmanns eða flutningsmanna að mörg er matarholan þegar kemur að svartri atvinnustarfsemi. Mér þætti mjög vænt um ef þessi sami hópur, sem vill þarna draga svarta atvinnustarfsemi upp á yfirborðið, kæmi til liðs við okkur Miðflokksmenn í að innheimta þegar álögð gjöld — sem myndi vissulega muna ríkissjóð miklu. Það er svo skrýtið að þegar við frjálslynt fólk sjáum hóp af fólki, þá sjáum við hóp af fólki. En nú virðist Sjálfstæðisflokkurinn vera kominn á sveif með vinstri mönnum og þegar þeir sjá hóp af fólki sjá þeir skattstofn. Það er mjög furðulegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli hafa litast þannig af þeim sem hann hefur gengið til hvílu með í þessari ríkisstjórn. En það er nú svo að ekki verður við öllu gert. Ég held að þetta mál geti orðið gott og ég vona að það fái greiða leið í gegnum þingið.