150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

varnarmálalög.

11. mál
[14:05]
Horfa

Flm. (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg):

Forseti. Það er mér mikil ánægja að fá að mæla hér fyrir þessu frumvarpi til laga um breytingu á varnarmálalögum. Það skýrist kannski að einhverju leyti af því að ég fæ ekki betur séð, í yfirferð minni um sögu þessara mála hér á landi, en að Alþingi Íslendinga hafi í raun ekki fengið það tækifæri að greiða atkvæði um neitt sem kemur að viðveru eða uppbyggingu erlends herliðs hér á landi síðan árið 1951, þegar svokallaður varnarsamningur var samþykktur í þessum sal og urðu töluverðar deilur þar um. Í því ljósi, að í alla þessa áratugi hefur þingheimi aldrei gefist þetta tækifæri, finnst mér sérstök ánægja að fá að mæla fyrir því að gefa þingheimi það tækifæri. Því um hvað snýst þetta frumvarp? Jú, það snýst um það eitt að allar bókanir og viðbætur við varnarsamninginn skuli bera undir Alþingi til samþykktar og alla uppbyggingu og allar framkvæmdir umfram eðlilegt viðhald á öryggis- og varnarsvæðum og mannvirkjum Atlantshafsbandalagsins sem og aðrar framkvæmdir og uppbyggingu. Með öðrum orðum snýst þetta frumvarp ekki á nokkurn hátt um afstöðu til varnarsamningsins, um afstöðu til veru herliðs hér á landi eða um afstöðu til uppbyggingar á vegum herliðs hér á landi. Þetta snýst um það eitt að ákvarðanir í þá veru séu teknar í þessum sal.

Hví er verið að leggja þetta til, forseti? Vegna þess að reyndin hefur verið sú í alla þessa áratugi að umræður um varnarmál hafa fyrst og fremst snúist um orðna hluti. Uppbyggingaráform hafa ekki komið til umræðu fyrr en eftir að þau hafa verið samþykkt. Hvernig má það vera? Hæstv. utanríkisráðherra hverju sinni hefur það vald samkvæmt varnarmálalögum að semja við Atlantshafsbandalagið um þessi mál. Síðan hefur hæstv. utanríkisráðherra lögbundið samráð við utanríkismálanefnd sem af og til er bundin trúnaði um þessi mál en hann kemur þá fyrir hv. nefnd og fer yfir það sem samið hefur verið um og síðan berast um þetta fregnir, bæði til okkar og annarra í samfélaginu. Reyndin hefur verið sú að síðustu ár, sem er eiginlega sérstaklega pínlegt, svo að ég leyfi mér að nota það orð, forseti, hafa fregnirnar kannski fyrst og fremst komið til okkar þegar bandaríska þingið samþykkir fjárlög. Það er nefnilega ástæða fyrir því að í júlí á hverju einasta ári dúkkar upp umræða um hver eigi að vera fyrirhuguð uppbygging á svokölluðu varnarsvæði. Það er af því að þá er bandaríska þingið að ræða það sem fjárlög. Þá er bandaríska þingið að fá upplýsingar til sín um hvaða fjármunum ætlunin sé að eyða í uppbyggingu á lítilli eyju úti í ballarhafi. Það má leiða að því líkur að kollegar okkar á bandaríska þinginu fái jafnvel meiri upplýsingar um þessi mál en við, sem eigum þó að heita löggjafinn í þessu landi.

Ég bind miklar vonir við að þetta frumvarp njóti mikils stuðnings í þessum sal. Þetta er eitt af forgangsmálum Vinstri grænna og ég er 1. flutningsmaður þess. Auk mín eru hv. þingmenn Andrés Ingi Jónsson, Ari Trausti Guðmundsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir einnig flutningsmenn að þessu máli. Þó að þetta sé mál ættað frá hinum ágæta þingflokki Vinstri grænna á það ekki að fara eftir neinum flokkslínum. Þetta mál snýst um að efla lýðræðislega umræðu um mikilvægt mál. Þetta mál snýst líka um að auka veg og virðingu Alþingis og efla það þegar kemur að ákvarðanatöku. Ég hef hlýtt á ansi marga hv. þingmenn tala akkúrat þannig, sjálfur hef ég oft gert það, að við viljum efla lýðræðislega umræðu um hin og þessi mál, að við viljum auka veg og vanda Alþingis. Hér gefst, forseti, tækifæri til þess að lyfta upp í umræðunni málum sem okkur öllum finnst merkileg og mikilvæg, gef ég mér. Okkur hlýtur öllum að finnast mikilvægt hvernig staðið er að uppbyggingu á vegum herliða hér á landi, hvaða viðbætur og bókanir eru gerðar við samning þar sem kveðið er á um hvernig varnarmálum þjóðarinnar og landsins sé fyrir komið. Er þetta ekki eitthvað sem allir þingmenn ættu að vilja að umræða fari fram um í þessum sal? Hvernig verður framkvæmdin, forseti, verði þetta að veruleika? Jú, hæstv. utanríkisráðherra hefur enn þennan málaflokk á sinni hendi, sinnir enn þeim skyldum sem það leggur honum á herðar, viðræðum við þá aðila sem ræða þarf við. Verði hins vegar í þeim viðræðum samið um einhverjar þær breytingar sem hér er kveðið á um þarf bara að gera þann samning með fyrirvara um samþykki löggjafa Íslands, þ.e. okkar Alþingis. Það er alþekkt að samningar séu gerðir með fyrirvara um hitt og þetta.

Þetta er réttlætismál en þetta er kannski fyrst og fremst lýðræðismál. Þess vegna segi ég aftur, forseti, að afstaða fólks, afstaða hv. þingmanna, til þess hvort hér eigi að vera her eða ekki, til þess hvort Ísland eigi að vera aðili að Atlantshafsbandalaginu eða ekki, kemur þessu máli ekki á nokkurn hátt við. Sjálfur hef ég mína skoðun í því. Ég tel að hér eigi ekki að vera her. Ég tel að við eigum ekki að vera í Atlantshafsbandalaginu en ég veit að hér er fólk sem situr á Alþingi sem hefur öndverða skoðun, um að hér eigi jafnvel að vera stærri her en nú er, jafnvel viðvarandi herstöð, og lítur á aðild að Atlantshafsbandalaginu sem hornstein að þjóðaröryggisstefnu, enda er samþykkt þjóðaröryggisstefnu hér í þingsal sem gerir akkúrat ráð fyrir því. Það kemur hins vegar innihaldi þessa frumvarps ekkert við í. Þótt sumum hv. þingmönnum þyki allt þetta, þyki aðild að Atlantshafsbandalaginu mikilvæg, þyki að hér eigi að vera her, hljóta þeir hinir sömu að styðja það að ákvarðanir þar um verði teknar hér í salnum. Við hljótum öll sem eigum sæti á Alþingi Íslendinga að fagna því, verði þetta frumvarp að veruleika, að geta í framtíðinni sýnt í verki afstöðu okkar til uppbyggingar hers hér á landi eða til áframhaldandi þróunar á samstarfi við Atlantshafsbandalagið með því að ræða það hér, með því að greiða atkvæði og sýna skýrt hver afstaða okkar er í þeim efnum.

Forseti. Eins ég hef lauslega komið inn á snýr frumvarpið að breytingu á nokkrum greinum í varnarmálalögum. Frumvarpið er í þremur greinum, þ.e. frumvarpið sem við ræðum hér. Í gr. segir, með leyfi forseta:

„Við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Allar bókanir og viðbætur við varnarsamninginn skal bera undir Alþingi til samþykktar. Hið sama gildir um skilasamninga og hvers kyns samkomulag sem felur í sér breytingu á framkvæmd varnarsamningsins. Óheimilt er að víkja frá ákvæði þessu á grundvelli 2. mgr. þessarar greinar.“

Og í 2. gr. segir:

„Við V. kafla laganna bætist ný grein, 16. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Uppbygging og framkvæmdir á mannvirkjum Atlantshafsbandalagsins o.fl.

Alla uppbyggingu og allar framkvæmdir umfram eðlilegt viðhald á öryggissvæðum, varnarsvæðum, mannvirkjum Atlantshafsbandalagsins sem og aðrar sambærilegar framkvæmdir og uppbyggingu skal bera undir Alþingi til samþykktar. Óheimilt er að víkja frá ákvæði þessu á grundvelli 2. mgr. 3. gr.“

Og svo er gildistökuákvæði.

Þess vegna segi ég, forseti: Hver sem afstaða fólks er til viðveru starfsfólks, herliða og uppbyggingar mannvirkja á varnarsvæðinu hlýtur að vera kappsmál allra sem sitja á Alþingi Íslendinga að auka lýðræðislega umræðu um varnarmál.

Það væri hægt, forseti, að halda langa ræðu um þær blikur sem eru á lofti í alþjóðamálum. Ég held hins vegar að ég standist þá freistingu, þær eru okkur öllum ljósar. Það er okkur öllum ljóst að voveiflega horfir þegar kemur að alþjóðamálum þegar tvö helstu herveldi heims keppast við að hafa áður gerða samninga um takmörkun á uppbyggingu hertóla að engu, þegar æ fleiri beina sjónum sínum í átt til norðurslóða, jafnvel með hernaðaruppbyggingu þar í huga, þegar í ýmsum löndum þessa heims sitja við stjórnvölinn einstaklingar sem taka kannski ekki alltaf allar ákvarðanir að vandlega yfirveguðu ráði, kannski ekki alltaf með hagsmuni Íslands í huga, hvað þá hagsmuni friðsamlegrar sambúðar, hvað þá hagsmuni loftslagsins í huga.

Í ljósi alls þessa hlýtur það að vera okkur sem hér sitjum keppikefli að geta rætt þessi mál, að við höfum okkar rödd og komum að ákvörðunum þegar að þessum málum kemur.

Forseti. Ég lýk hér máli mínu um þetta mál og legg til að að lokinni umræðu fari það til viðeigandi nefndar.