150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

varnarmálalög.

11. mál
[14:19]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Þetta er sérstakt mál að mörgu leyti, ekki síst vegna þess að nú er flokkur hv. þingmanns farinn að ræða það hér að ráðherra málaflokksins — sem flokkurinn á greinilega erfitt með að treysta, í það minnsta virðist vera samskiptaleysi milli utanríkisráðherra og ríkisstjórnarflokkanna samkvæmt þessu frumvarpi því að frumvarpið gengur aðallega út á að kvarta yfir því að það sé eitthvert samskiptaleysi þarna á milli — deili ekki upplýsingum um hvaða framkvæmdir eigi að fara í suður á Keflavíkurflugvelli, ef ég skil það rétt. Það er hins vegar kannski ekkert undarlegt að Vinstri græn skuli koma með svona frumvarp í ljósi þess að fram til þessa, það kemur nú ítrekað fram í ræðu hv. þingmanns að málið fjalli ekki um herinn beint eða Atlantshafsbandalagið, hefur flokkurinn kastað þeirri hugsjón sinni algerlega út í myrkrið þegar þurft hefur að mynda ríkisstjórnir undanfarin ár eða áratugi. Það kemur því ekkert á óvart.

Það sem mig langar að spyrja þingmanninn út í er hvort ekki hafi verið reynt að koma þessu máli í gegnum ríkisstjórn af einhverjum ráðherranum eða utanríkisráðherra beðinn að flytja slíkt mál því að ég sé að það er enginn þingmaður úr öðrum ríkisstjórnarflokkum á málinu. Veit þingmaðurinn til þess að ráðherra utanríkismála hafi verið kynnt þetta mál af hálfu Vinstri grænna, sem er eins og allir vita stjórnarflokkur í samstarfi við utanríkisráðherra?

Síðan langar mig að biðja hv. þingmann að lýsa því fyrir mér og okkur á þingi hvað sé eðlilegt viðhald samkvæmt 2. gr. því að þar er talað um að allar framkvæmdir umfram eðlilegt viðhald á öryggis- og varnarsvæðum o.s.frv. þurfi að koma til umfjöllunar Alþingis. Til að auðvelda hv. þingmanni þetta spyr ég hvort framkvæmd eins og farið var í fyrir nokkru síðan, breytingar á flugskýli og þvottastöð fyrir flugvélar, þyrfti að koma fyrir Alþingi.