150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

varnarmálalög.

11. mál
[14:29]
Horfa

Flm. (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Kom að því að við urðum sammála, þótt ekki væri nema um eina setningu — það er töluvert og mjór er mikils vísir. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að hafa lesið akkúrat þessa setningu upp úr greinargerðinni, spurning hvort hann sé ekki líka sammála næstu setningu þar á eftir því að hún fangar á einhvern hátt það sem hv. þingmaður var að segja. (Gripið fram í.) Samþykkt Alþingis á breytingum á þeim skyldum, þ.e. þeim skyldum sem hér var vísað til, sem Ísland tekur sér á herðar styrkir einnig grunn slíkra ákvarðana, hverjar sem þær verða. Með öðrum orðum, hver svo sem afstaða alþingismanna yrði hverju sinni til þeirra ákvarðana sem kæmu hingað inn, hver sem hún yrði, þá myndi það að hv. Alþingi tæki málið til umfjöllunar og afgreiðslu styrkja þær ákvarðanir.

Hv. þingmaður lagði fyrir mig tvær spurningar, annars vegar hvort frumvarpið gæti með einhverjum hætti gengið gegn þjóðaröryggi. Ég segi fyrir mína parta að ég sé það ekki. Ég hef litið svo á að slík leyndarhyggja væri ekki við lýði, ég vona að svo sé ekki, að það megi ekki ræðast á Alþingi Íslendinga. Hins vegar geri ég ráð fyrir að hv. utanríkismálanefnd muni fá umsagnir um málið og fjalla um það þannig og þá mun eitthvað mögulega koma í ljós. Ég er ekki sérfræðingur í hvernig herlið starfa. Nei, við flutningsmenn teljum að frumvarpið sé á engan hátt í andstöðu við samþykkta þjóðaröryggisstefnu af því að þetta snýst um hver tekur ákvarðanirnar, ekki hverjar ákvarðanirnar eru.