150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

varnarmálalög.

11. mál
[14:33]
Horfa

Flm. (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg) (andsvar):

Forseti. Það er ágætt að endurtaka hluti. Þannig síast þeir inn, mögulega. Ég get staðfest við hv. þingmann að við samningu þessa frumvarps var litið svo á að það stangaðist á engan hátt á við þjóðaröryggisstefnu landsins. Aftur ítreka ég að í þjóðaröryggisstefnu er kveðið á um að NATO-aðild sé einn af hornsteinum utanríkisstefnunnar — er það ekki orðalagið sem er notað? Hér er ekki verið að fjalla um NATO-aðild, bara á engan hátt. Jafnvel mætti færa rök fyrir því að það myndi styrkja þjóðaröryggisstefnu, ákveði þingheimur að samþykkja eitthvað tengt þessu þegar kemur til atkvæðagreiðslu í þingsal. Það er þá ákvörðun sem er tekin með samþykki hér í þingsal.