varnarmálalög.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þetta greinargóða svar. Mig langar að halda áfram með spurningarnar. Ég reyndi að ná svörunum sem komu fram í fyrri fyrirspurnum. Í fyrsta lagi, þar sem þetta hefur verið kynnt ráðherra utanríkisráðherra: Hvert er hans viðhorf til málsins? Fram kom í öðru máli áðan að sum þingmannamál verði ríkisstjórnarmál og ef þetta mál er ekki til heimabrúks: Telur þingmaðurinn líklegt að þetta mál rati á endanum inn í ríkisstjórnarþingmálin á næsta ári, hugsanlega fyrir atbeina Vinstri grænna? Síðan vildi ég spyrja hvort þingmaðurinn sjái fyrir sér að utanríkismálanefnd verði með greiðari aðgang að gögnum og upplýsingum um þjóðaröryggismál sem tengjast bæði verkefnasviði forsætisráðherra og utanríkisráðherra.
Ég fagna því að við erum sammála um að við eigum að ræða meira öryggis- og varnarmál í nýju ljósi. Svo mörg teikn eru á lofti í dag sem segja að við verðum að fara að taka á öðrum hlutum en akkúrat þeim sem nú standa í varnarsamningnum. Það eru ýmsir hlutir að gerast (Forseti hringir.) sem kalla á að við förum í ítarlegri umræðu, bæði í þingsal og innan utanríkismálanefndar.