150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

varnarmálalög.

11. mál
[14:54]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef svo sem ekki miklu við þetta að bæta. Það er sjálfsagt mál að ræða NATO-aðild í sífellu og við eigum alltaf að vera að setja spurningarmerki við stefnu okkar í hernaðarmálum. Ég ítreka það sem ég sagði áðan að það að tengjast hernaðarbandalagi er erfið tilhugsun og jafnvel ógeðfelld tilhugsun að mörgu leyti, en á sér þó röksemdir þegar horft er kalt á málið.

Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir að auðvitað er hægt að vera fullgildur aðili að samfélagi þjóða án þess að vera þátttakandi í hernaðarbandalagi. En staða okkar á jarðarkringlunni er hins vegar með þeim hætti, auk þess sem smæð þjóðarinnar og herleysi veldur því að það er gott að hafa visst skjól.