búvörulög.
Herra forseti. Ekki er einfalt að fjalla um frumvarpið sem hér liggur fyrir, frumvarp um breytingu á búvörulögum. Ég átta mig á markmiðum flutningsmanna og ég held að ég skilji rétt af hvaða ástæðu þetta frumvarp er lagt fram, sem er sú að styrkja grunn sauðfjárbænda sérstaklega og þar með búfestu víða um land. Að þessu leyti er markmið frumvarpsins dálítið göfugt — ekki dálítið, það er göfugt. En frumvarpið er hins vegar stórgallað. Ég hygg að nái það fram að ganga sé hægt að færa rök fyrir því að það muni snúast upp í andhverfu sína og koma niður á bændum til lengri tíma litið. Það eru ekki hagsmunir bænda að koma lögum þannig fyrir að hér reki t.d. bara einn aðili afurðastöðvar. Það eru ekki hagsmunir bænda og alls ekki hagsmunir neytenda. Það er af augljósum ástæðum sem ég hygg að ekki þurfi að ræða af hverju. Hagsmunir bænda ættu fremur að liggja í því að fjölga afurðastöðvum og fjölga þeim aðilum sem keppa um afurðir bænda. Hagsmunir neytenda liggja í því að hér séu afurðastöðvar sem eru sjálfstæðar, ekki fjárhagslega tengdar og ekki í nánu samstarfi þannig að mörkin á milli þeirra séu engin. Það mun leiða til lægra verðs til neytenda en ekki bara það heldur miklu meira vöruúrvals og meiri vöruþróunar.
Ég er sem sagt á því að nái þetta frumvarp fram að ganga verði hagsmunir bænda fyrir borð bornir. Til lengri tíma munu bændur ekki njóta þess hagræðis sem verið er að sækjast eftir með því að leyfa afurðastöðvum að sameinast eins og lagt er til hér. Ég tala nú ekki um þegar engin hagræðingarkrafa er lögð fram líkt og var gert í mjólkinni.
Ég hef haldið því fram að nauðsynlegt sé að endurskoða samkeppnislögin í heild sinni og að hluti af þeirri endurskoðun eigi að vera fólginn í því að setja landbúnaðinn ótvírætt undir samkeppnislög þannig að við hættum að deila um hvort landbúnaðurinn heyri undir samkeppnislög eða ekki. Það væru þá bara sérákvæði í samkeppnislögunum, skýr ákvæði um landbúnað. Ég hygg að fyrir neytendur og fyrir bændur sjálfa sé það skynsamlegast þegar til lengri tíma er litið.
Annað sem ég hef áhyggjur af er ásýnd bænda, sú ímynd sem verður til af bændum þegar verið er að opna þær dyr að hér verði bara einn aðili sem sinni öllu starfi er kemur að afurðastöðvum, bara ein stór afurðastöð. Ég hygg — nei, það er það sem mun gerast, kæri vinur, hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson, ef opnað verður fyrir að afurðastöðvar geti sameinast alveg óháð öllu og þurfi ekki að gera neitt annað en að tilkynna það ráðherra eins og lagt er til hér í frumvarpinu, þá mun það gerast. Það gerist ekki á næsta ári, það gerist ekki á ári tvö en það mun gerast í framtíðinni. Og það mun ekki styrkja stöðu bænda. Það mun aftur á móti veikja hana. Þar með byrjar frumvarpið að bíta í skottið á sjálfu sér og þeim göfugu markmiðum sem flutningsmenn hafa. Það er þess vegna sem ég held að það sé mjög mikilvægt, þegar hv. atvinnuveganefnd fær þetta frumvarp til skoðunar og umfjöllunar, að litið verði einmitt á þessa þætti. Hvað þýðir þetta í raun þegar fram líða stundir? Það er nefnilega ekki nægjanlegt að horfa bara á stöðuna eins og hún er í dag heldur verða menn líka að reyna að meta áhrifin, eins og hægt er. Enginn getur spáð um framtíðina en hægt er að leiða líkur að því hvað gerist þegar við samþykkjum ákveðin lög þannig að við vitum nokkurn veginn hvað við erum að gera.
Og þá eru tvær spurningar, bara tvær spurningar, sem hv. atvinnuveganefnd þarf að leita svara við. Hvaða áhrif hefur þetta frumvarp, verði það að lögum, á bændur, á sauðfjárbændur sérstaklega, og hvaða áhrif hefur það á búfestu í landinu? Þetta er fyrri spurningin. Síðari spurningin er: Hvaða áhrif hefur þetta á íslenska neytendur? Svör við þessum tveimur spurningum verða að liggja skýr fyrir áður en frumvarpið er samþykkt á þingi.
Þetta eru þær ábendingar sem ég vildi setja fram, hæstv. forseti. Ég vonast til þess að hv. atvinnuveganefnd taki þessar spurningar og fjöldamargar aðrar til efnislegrar umfjöllunar og leiði fram í þingsal svör við þeim.