búvörulög.
Herra forseti. Það að ég dragi fram þær staðreyndir sem liggja fyrir, m.a. um þá gríðarlegu framleiðniaukningu sem hefur átt sér stað í íslenskum mjólkuriðnaði, hjá afurðastöðvum og hjá bændum, meiri en nokkur önnur atvinnugrein sýnir, merkir ekki að ég sé að taka undir að mjólkuriðnaðurinn eigi að njóta þeirrar stöðu sem hann er í í dag. Ég er bara að benda á hið augljósa, að þegar við ræðum þessi mál skulum við líka átta okkur á að það eru ákveðnar staðreyndir. Það er ákveðinn árangur sem hefur náðst og við þurfum að spyrja okkur: Eru það hagsmunir bænda og neytenda að breyta til? Ég er sannfærður um að svo sé. Ég er t.d. sannfærður um að vinna eigi að því með markvissum hætti að skera á tengsl milli söfnunar mjólkur og afurðastöðva, þ.e. að söfnun á mjólk eigi að vera í sjálfstæðu félagi, líklegast í eigu bændanna sjálfra, og það fyrirtæki selji síðan mjólkurafurðirnar til afurðastöðvanna. Það getur ýtt undir að hér verði til fleiri afurðastöðvar og samkeppni verði á sviði afurðastöðva um afurðir bænda. Það er þetta sem ég held að við ættum að fara að ræða.
Það breytir ekki hinu að ég vil að íslenskur landbúnaður falli undir samkeppnislögin. En ég tek líka fram að það kunna að vera rök fyrir því að í þeim lagaákvæðum séu ákveðnar reglur sem eru sértækar fyrir landbúnað en gilda ekki á öðrum sviðum í viðskiptalífinu.