búvörulög.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir góða og skemmtilega ræðu. Þetta er akkúrat svona. Við ræðum landbúnað ekki nógu mikið og leiðir til að göfga hann og efla. Það komu margir áhugaverðir punktar fram í ræðu hans. Mig langar að spyrja hann aðeins um þann þátt að breyta bara samkeppnislögunum. Ég man ekki betur en að við vinnslu þessa frumvarps höfum við lagt upp með að breyta samkeppnislögunum. Okkur var bent á að það gæti orðið þrautin þyngri varðandi tengsl við sameiginleg samkeppnislög innan EES-samningsins o.s.frv. Ég reikna með því að hv. þingmaður sé fróðari um þann þátt en ég. Mér þætti mjög gott að fá svar við þessari spurningu.
Hv. þingmaður kom einnig inn á það sem stefnt er að í frumvarpinu varðandi afurðastöðvar í kjötiðnaði þegar hann ræddi um afurðastöðvar í mjólkuriðnaði. Hvaða árangur hefur náðst þar? Vissulega fæst hærra verð fyrir afurðirnar til bænda. Vöruframboð, vöruúrval, vöruþróun o.s.frv. hefur stóraukist og verð til neytenda er gott, fullyrði ég. Þeir fá frábæra vöru á góðu verði. Það er í sjálfu sér hugmyndin sem býr að baki, nákvæmlega sú sama, horfum bara til þess. En ég ætla ekki að slá hendinni á móti því að atvinnuveganefnd rannsaki málið, fari vel yfir það og vinni það almennilega en stingi því ekki bara undir stól eins og var gert fyrir ári.