150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

búvörulög.

12. mál
[15:47]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Mér líður bara eins og leikmanni í þriðjudeildarliði að ræða við úrvalsdeildarleikmann, þegar kemur að landbúnaði, að eiga orðastað við hv. þm. Þórarin Inga Pétursson. (Gripið fram í: Undir stjórn alþjóðadómara. ) Já, undir stjórn alþjóðadómarans, forsetans sjálfs. Eitt af því sem ég hygg að menn eigi líka að velta fyrir sér er: Af hverju hefur staða mjólkurbænda, ef við tölum almennt, auðvitað er það misjafnt, styrkst á undanförnum árum eða áratugum en á sama tíma hefur staða sauðfjárbænda verið að veikjast? Af hverju hefur orðið miklu meiri — alveg ótrúleg — vöruþróun í mjólkuriðnaði sem ekki hefur náð inn í afurðastöðvar í kjöti? Hvaða ástæður eru þar að baki? Ég hygg að ástæðan sé ekki sú að mjólkuriðnaður sé undanskilinn samkeppnislögum eins og verið er að leggja til hér. Ég hygg að aðalástæðan sé fremur sú að menn tóku þá skynsamlegu ákvörðun að kvótasetja framleiðslu í mjólk. Því miður eru menn að fara í hina áttina þegar kemur að sauðfjárbúskap og ég held að það þurfi að líta til þessa.

Varðandi þær skyldur eða kvaðir sem við höfum undirgengist í EES-samningnum og hvort við getum smíðað sérreglur um landbúnað inn í samkeppnislög er mér ekki kunnugt um að það sé eitt eða neitt í EES-samningnum sem komi í veg fyrir að við sníðum umhverfi landbúnaðar með þeim hætti sem við teljum skynsamlegt og innleiðum þar samkeppni eins og hægt er vegna þess að það er það sem ég held að þjóni hagsmunum bænda og hagsmunum neytenda best. En það kann að vera að frekari rannsókna þurfi við.