búvörulög.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þá umræðu sem orðið hefur. Áður en ég reyni að ramma umræðuna inn langar mig að deila smáupplýsingum með hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni. Hann spurði nokkurra spurninga og ætla ég að skella mér í jakkann sem ég var í fyrir nokkrum árum þegar ég gegndi starfi formanns Landssamtaka sauðfjárbænda. Hv. þingmanni varð tíðrætt um 30% sem verð hafi fallið um á sínum tíma. Það féll að vísu töluvert meira en það. (ÞorS: Á einu ári.) Svo vill til að sá sem hér stendur hefur einnig setið í stjórnum afurðastöðva. Á þeim tíma sem þetta verðhrun varð til bænda — nú ætla ég ekki að vera að taka upp hanskann fyrir neinn, bara að reyna að koma réttum upplýsingum á framfæri — voru kjarasamningar í landinu. Laun þeirra sem unnu í afurðastöðvum hækkuðu á þessum tíma, á tveggja ára tímabili, um 40%, markaður erlendis kolféll o.s.frv. Ég varð ekki var við, hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson, að afurðastöðvarnar græddu á tá og fingri á þeim tíma. Enginn þeirra gerði það. Það ætla ég að fullyrða.
Varðandi upprunamerkingar, markaðssetningu o.s.frv. er verið að vinna í því samhliða því frumvarpi sem hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er með núna, þ.e. hráakjötsfrumvarpið. Innan þess er 17 liða aðgerðaáætlun og einn þeirra fjallar um upprunamerkingar á vörunni. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni hvað það varðar að upprunamerkja allar vörur. Það er mjög mikilvægt fyrir neytendur og gaman að því. Við þekkjum þetta einnig hjá einni ágætri afurðastöð norður í landi sem getur upprunamerkt vöru sína í Fjarðarkaupum, ef ég man rétt. Þá er ég að tala um Fjallalamb á Kópaskeri.
Hvað varðar markaðssetninguna á kjöti get ég alveg tekið undir að henni hefur verið — og var sérstaklega — mjög ábótavant en við megum heldur ekki gleyma því að henni hefur farið stórlega fram. Þá vil ég minna á eitt gott verkefni sem heitir Icelandic Lamb sem var hluti af búvörusamningi sem við gerðum á árunum þegar t.d. hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var forsætisráðherra og ég formaður sauðfjárbænda, sem var bara ágætissamningur. Þar var t.d. verkefni sem tengist Icelandic Lamb þar sem bæði var unnið í erlendum mörkuðum og einnig við að markaðssetja lambakjöt hér innan lands til erlendra ferðamanna. Ég trúi því, þar sem ég veit að hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson er mikill áhugamaður um mat, að hann hafi tekið eftir því á veitingastöðum í höfuðborginni að hægt er að fá lamb mjög víða. Ég minni á að það eru yfirleitt merktir veitingastaðir, það er skjöldur utan á veitingastöðunum frá Icelandic Lamb, og þar er yfirleitt hægt að fá virkilega gott lambakjöt. En ég vil líka minna á að við erum ekki bara að tala um dilkakjöt eða lambakjöt í þessu frumvarpi. Við erum að ræða um allt kjöt. Allt kjöt er mikilvægt. Þó að sjálfur framleiði ég töluvert af lambakjöti er allt kjöt mikilvægt sem við framleiðum hér á landi vegna þess að það styður hvað annað. Afurðastöðvar í kjötiðnaði eru margar hverjar með þríþætta starfsemi, dilkakjöt, svínakjöt og nautakjöt. Þetta styður hvert annað.
Einnig var komið inn á hlutfallsskiptingu á lambalæri. Ég man til þess, hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson, að ef farið er inn á heimasíðu Landssamtaka sauðfjárbænda sést að árið 2016 var þessi hlutfallsskipting unnin og ég man ekki betur en að hún hafi verið unnin aftur síðar. Ég verð að viðurkenna að ég man ekki tölurnar og skal biðjast afsökunar á því að hafa ekki flett því upp áðan. En það var vissulega sláandi mynd. Ég get alveg sagt það, verulega sláandi.
Svona að lokum: Ef við t.d. berum gæfu til þess að endurskoða samkeppnislög í heild sinni, eins og hv. þm. Óli Björn Kárason kom inn á, tel ég það líka mjög góða leið en við verðum alltaf að hafa í huga þegar við tölum um íslenskan landbúnað að við erum í samkeppni erlendis frá við risafyrirtæki. Ég hef mikla trú á íslenskum landbúnaði. Við sjáum það vel í mjólkurframleiðslu hvað gerðist við þá undanþágu sem var gerð á sínum tíma einungis fyrir mjólkuriðnaðinn, undanþágu frá 71. gr. búvörulaga. Ég horfi vissulega til þess að hið sama geti gerst en ég mæli líka sterklega með því að þetta verði skoðað mjög vel og unnið vel í þessu frumvarpi og því ekki stungið undir stól því að við þurfum á því að halda. Íslenskir matvælaframleiðendur þurfa á svona löguðu að halda. Það er lykilatriði.
Hvað varðar vöruframboð og vöruþróun hafa vissulega gerst ágætir hlutir en með sterkari einingum tel ég að þeir komi til með að verða enn öflugri. Mér finnst aðeins hafa verið talað í umræðunni upp á síðkastið, eða á tímabili í umræðunni, eins og landbúnaðurinn væri varla undir samkeppnislögum. Þá voru menn að horfa til mjólkuriðnaðarins en við værum væntanlega ekki að leggja þetta frumvarp fram til annars en að fá undanþágu. Menn hafa aðeins komið inn á að það sé ekki nógu mikil dýpt í frumvarpinu og þess háttar. En ég vil líka segja að sá texti sem er í frumvarpinu hljóðar næstum því eins og er í frumvarpinu um mjólkurframleiðslu. Það er enginn að tala um að það verði aðeins ein afurðastöð í landinu og ekki ætla ég að skorast undan því frekar en aðrir að gera kröfur til þeirra sem fá undanþágur, eða hvort við breytum samkeppnislögum eða hvað sem það er. Auðvitað gerum við skýlausa kröfu til þeirra um að spila eftir þeim leikreglum sem settar eru hverju sinni. Það snýst nákvæmlega um það sama, burt séð frá því hvort það er Samkeppnisstofnun og afurðastöðvar í kjötiðnaði eða mjólkuriðnaði. Í þessu húsi hér setja menn lögin og við ætlumst líka til þess að menn fari eftir þeim leikreglum sem settar eru, alveg sama hvað er. Ef okkur líst ekki á að það verði t.d. ein afurðastöð og viljum hafa frekar tvær eða hvað sem það er, þrjár, fjórar eða fimm, erum við líka að tala um að þær geti haft með sér samstarf. Það er ekki skylda að þær sameinist. Það er enginn að tala um það.
Nú gengur þetta frumvarp væntanlega, virðulegur forseti, til hv. atvinnuveganefndar sem vonandi leggur góða vinnu í frumvarpið og bætir það. Ég trúi því að atvinnuveganefnd bæti frumvarpið og ég heyri ekki annað á þeirri umræðu sem hefur verið í dag en að allir horfi til sama markmiðs. Þetta snýst bara um leiðirnar að markinu. Það er ekkert heilagt í því þó að við leggjum fram eitthvert frumvarp þess efnis. Jú, við erum með ákveðið markmið með því, við teljum að þetta sé leiðin, en ef einhverjir aðrir koma með betri leiðir og við náum sömu niðurstöðu fagna ég því.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og vona að hún komi fljótt aftur inn í þingsal og við höldum áfram að ræða þetta þarfa og góða mál.