búvörulög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Péturssyni kærlega fyrir ræðuna. Ég þakka honum fyrir að fylla inn í þær eyður sem var að finna í málflutningi mínum. Hv. þm. Óli Björn Kárason talaði um það áðan að það að ræða við hv. þingmann væri eins og að ræða um fótbolta við alþjóðadómara en mér finnst þetta meira eins og að boxa við Muhammad Ali með hægri höndina bundna fyrir aftan bak. En það er önnur saga og allt í lagi með það. Ég þakka bara aftur fyrir að fyllt var inn í þar sem upp á vantaði í málflutningi mínum.
Það er eitt sem vefst fyrir mér og hefur kannski valdið því að ég er svolítið tortrygginn á þetta frumvarp. Nú vitna ég aftur í 30% lækkunina sem varð fyrir þremur árum, ofan á 10% þar áður. Það sem gerist fyrir þremur árum er að bændur skera niður eða leggja minna á, nema hvort tveggja sé. Og hvað gerist þá? Jú, við fáum a.m.k. orðróm um vöruskort tveimur árum seinna, vegna þess að það að framleiða lambakjöt er ekki eins og að prjóna sokka. Maður gerir það ekki á einu kvöldi. Það er kannski þetta sem ég gagnrýni. Þegar 30% niðurskurðurinn varð á verði til bænda var það gert á grunni þess að hér væri eitthvert ægilegt kjötfjall. Það er alla vega sú ástæða sem var gefin upp í fjölmiðlum. Ekki sú að afurðastöðvarnar væri blankar heldur að það væri alveg ofboðslegt fjall af kjöti sem reyndist svo vera smotterí þegar allt kom til alls, enda hefur það komið í ljós síðan. Þá segi ég aftur: Menn vissu ekki í hvaða skrokkhlutum þessar birgðir voru. Voru þetta slög, svið og lifur? Það getur vel verið og út á þetta voru bændur lækkaðir um 30%.
Það er þetta sem ég vildi kannski fá viðbrögð við frá hv. þingmanni, að við séum ekki að byggja ákvarðanir á svona aðstæðum.