150. löggjafarþing — 8. fundur,  23. sept. 2019.

borgarlína og veggjöld.

[15:15]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að ganga svo langt en verð engu að síður að leiðrétta þingmanninn, markaðar tekjur áður fyrr af þeim sköttum og gjöldum sem voru á umferð eða á bíla voru fyrst og fremst bensíngjöldin og dísilgjöldin og þau hafa alltaf runnið til vegagerðar, alla tíð nema kannski á árinu 2011. Hins vegar eru tekjur af bílum umtalsvert meiri. Það er virðisaukaskattur og ég hef aldrei heyrt að þær tekjur hafi verið markaðar til eins eða neins, heldur hafi þær farið í að reka hið sameiginlega ríkiskerfi. Það hafa líka verið aðflutningsgjöld og þær tekjur hafa aldrei verið markaðar til slíks. Það eru umtalsverðir fjármunir sem renna þarna til. En ég vil líka minna hv. þingmann á að slysin í umferðinni, bara banaslysin og alvarlegustu slysin, kosta okkur 40–60 milljarða á ári. Ef hv. þingmaður meinar það sem hún segir, að tekjurnar eigi að standa undir öllum kostnaði, duga ekki þau gjöld sem við erum með í dag til að byggja upp vegakerfið og standa undir þessum kostnaði. Hef ég þá ekki minnst á tollgæsluna (Forseti hringir.) eða löggæsluna eða aðra þá þætti sem tengjast þessu máli. Við getum tekið umræðuna og ég hlakka til að taka hana á málefnalegum grunni þegar við erum búin að undirrita og kynna og getum rætt alla hluti eins og þeir eru.