spilafíkn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Það er rétt sem kemur fram í reifun hans að hér er um að ræða starfsemi sem kemur fram á heimasíðu SÁÁ að sé þar fyrir hendi, þ.e. meðferð við spilafíkn. Það er líka rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns að hluti af starfsemi SÁÁ er einmitt fjármagnaður með þeim hætti að njóta tekna frá spilakössum.
Það er líka mikilvægt að taka fram hér, af því að hv. þingmaður talar um samninginn milli ríkisins, þ.e. Sjúkratrygginga Íslands, og SÁÁ að nú er einungis í gildi samningur upp á 150 milljónir frá yfirstandandi ári en ekki skilgreindur samningur hvað varðar stóra framlagið sem er framlagið sem Vogur nýtir til rekstrar en þó bara að hluta eins og kemur fram í máli hv. þingmanns. Fyrir liggur að ekkert er um þetta fjallað í gildandi samningi, þ.e. að hve miklu leyti á að sinna þessari meðferð. Það er líka rétt sem hv. þingmaður bendir á, að þarna værum við að tala um allan skalann, frá forvörnum og í gegnum meðferð. Það sem hefur verið sérstaklega vandi með þennan hóp er hversu erfitt er að kalla hann fram. Svo virðist sem það sé gríðarlega mikil skömm að því að vera í þeirri stöðu að nota allt sitt fjármagn og meira til í spilakassa og spilafíkn og valda sjálfum sér og aðstandendum sínum ómældum vanda. Það hefur verið sérstaklega erfitt og krefjandi að kalla bara yfirleitt fram grundvallarupplýsingar að því er varðar þörf fyrir þessa þjónustu. Fyrst og fremst þar stendur hnífurinn í kúnni.