150. löggjafarþing — 8. fundur,  23. sept. 2019.

fríverslunarsamningar við Bandaríkin.

[15:31]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Forseti. Nú er ljóst að í alþjóðamálum eru málefni norðurslóða að verða sífellt mikilvægari. Við upplifum það mjög áþreifanlega að áhugi þriggja stórvelda í kringum okkur vex mjög á landfræðilegri legu Íslands í ljósi þeirra hagsmuna sem þarna kunna að vera í húfi. Því miður fara þeir hagsmunir ekki alltaf saman við okkar eigin því að áhersla þessara þriggja ríkja á t.d. málefni umhverfisverndar og slíkra þátta hefur verið öllu minni en á auðlindanýtingu eða siglingaleiðir sem þarna gætu opnast. Nú síðast fréttist af því að á hádegisverðarfundi þingmanna Repúblikanaflokksins hafi komist sérstaklega til tals mögulegur fríverslunarsamningur við Ísland af hálfu Bandaríkjanna. Það er út af fyrir sig mikið fagnaðarefni en ákveðið stílbrot í stefnu ríkisstjórnar þess lands í dag varðandi utanríkisviðskipti sem hefur meira helgast af einangrunarhyggju.

Ég vil því eiga samtal við hæstv. utanríkisráðherra um okkar eigin stefnu í þessu. Nú hljótum við að ætla að marka okkur stefnu í norðurslóðamálum út frá hagsmunum Íslands en ekki út frá þeirri stöðu að við séum einhvers konar skiptimynt eða að við leitum hæstbjóðanda í utanríkisviðskiptum og beitum þá norðurslóðum sem einhvers konar útspili í þeim efnum. Ég minni á í því efni að enn virðist ríkisstjórnin ekki hafa svarað óljósu tilboði Kína um þátttöku Íslands í Belti og brú verkefninu sem hefur verið varað mjög eindregið við enda mjög misgóð reynsla af Kína í þeim efnum víða um heim.

Þess vegna vildi ég gjarnan heyra frá hæstv. ráðherra hver stefna okkar er. Hefur verið lögð sérstök vinna í mótun hennar hvað þetta varðar og hvernig markast hún af samskiptum okkar við þessi þrjú stórveldi en ekki síður auðvitað þau ríki sem kannski helst deila með okkur hagsmunum sem eru Norðurlöndin og Evrópusambandið?